28 september 2007

...rómó út að borða - hugmyndir - s.o.s...

Einsog landinn veit þá á ég afmæli mánudaginn (1.okt) - jújú kellan er að skella í 28 árin ...
Er það ekki bjútífúl - að verða árinu eldri....
Er að vandræðast með veitingastaði í Reykjavík - við kæró ætlum að gera okkur "glaðan dag" og fara út að borða eitthvað fínt, bara tvö..nema hvað við erum ekki betri en það, greinilega ekki alveg nógu hipp&kúl - að við vitum ekkert hvert við eigum að fara...
Getiði mælt með einhverjum rólegum og góðum stað.... og ekki væri verra ef að að það væri "dass" af rómóheitum líka á þeim stað ?!?!?!?


Rakst annars á aðra snilldina hjá Dr. Gunna - Okursíðan hans er náttúrulega bara alveg hrikalega sniðugt fyrirbæri....
Alltaf blöskrar manni okrið og verðlagningin og það kemur svona nettur pirringur í mann og maður fussar og sveijar (í hljóði) þannig að þetta framtak hjá honum er bara vel þegið... :)

5 ummæli:

Nafnlaus sagði...

það er voða kósí á lækjarbrekku - eða mér finnst það :)

annars er það líka smá spurning hversu fjölbreyttan matseðil þið viljið ;)

Tinna Kirsuber sagði...

Caruso er fínn. Rómantískur án þess að valda velgju og ódýr án þess að láta manni líða einsog fátæklingi. Svo er maturinn góður.

Hafðu það gott vinan. Knús frá mér :*

Nafnlaus sagði...

nota frekar peninginn i mida til DK, er tad ekki bara... og bua til goda kjotsosu : -)

Tinna Kirsuber sagði...

1. október 2007

Til hamingju með daginn elsku ljúfa! Eigðu yndislegan afmælisdag.

Knús knús og aftur knús :*

Svetly sagði...

..Takk fyrir það litla "krúttusprengjan" mín :)