27 maí 2005

...sól og blíða...

...og bærinn ef fullur....æi maður verður svo kátur og glaður í svona veðri eitthvað, svo léttur í lund..reyndar búið að vera geeeeeðveiki að gera í litlu bókasjoppunni, allir á síðasta snúning að kaupa útskriftargjafir - Íslendingar á síðustu mínútu...ha, nei aldrei !!
....æi er syngjandi glöð í dag - ætla að fá mér ís eftir vinnu...eða kanski barasta bragðaref...*slurk*, njóta sólarinnar og skoða fólkið....jebbsí svona á lífið að vera!
Átti alveg yyyyyyyyyndislega kvöldstund í gær með Mjallhvíti-litla heimalingnum mínum, alveg allt of langt síðan að við áttum svona "spjall spjallanna"....sátum á kaffihúsi og rifjuðum upp gamlars stundir og syndir...alltaf gaman að því....!
...ó wellý, nenni ekki að skrifa né hugsa - bauninn soðin af sólinni.....vonandi eigiði barasta fína og góða helgi...

9 ummæli:

Nafnlaus sagði...

HEYRÐU.......2 vikum seinna, veit að það er mikið að gera hjá þér og sólin er löngu farin......... skrifa......
hi hi love you:)

Nafnlaus sagði...

jamm,skrifa

Hugrun sagði...

Nákvæmlega...vildi bara ekki vera fyrst til þess að kvarta...!!!

Svetly sagði...

..baunin bræddi úr sér þegar að síðasta færsla átti sér stað..stundum hefur maður bara svo mikið að segja að það er best að segja ekki neitt... ;)

Hugrun sagði...

Oh! Nú verður maður forvitinn...æi..hvað er ég að bulla, ég er alltaf forvitin ;)

Nafnlaus sagði...

?

Svetly sagði...

..hver, hver, hver er "anonymous" ??...forvitnisbjallan ég er ekki að meika svona *bros* :)

Nafnlaus sagði...

Sammál fyrri anonymous :) Skrifa meira

Svetly sagði...

...áms - sletti inn einsog einni færslu í dag, lofa :)