31 júlí 2002

Hellú hellú gott fólk...
Jæja nú er þessi dagur að verða hálfnaður og ég fer í frí á morgun *jeij*, tíminn er svo fljótur að líða.....áður en ég veit af verð ég orðin fertug og krumpuð :)
Langðaði bara svona að heilsa uppá ykkur.....verð að skrifa ykkur betur á eftir því að ég er að fara í mat núna....það er víst eitthvað svona "grísabuff"....*hrollur* í matinn.....get ekki hætt að hugsa um atriði sem að ég sá í "Fear Factor" um daginn þar sem að fólk var látið éta "svínsleg".....*æl*.....ég held að ég hafi bara aldrei kúast yfir einhverju í sjónvarpinu, fyrr en ég horfði á þetta......hvað myndi maður sjálfur ganga langt fyrir pening.......well við íslendingar étum súrsaða punga svo að þetta ætti nú ekki að vera mikið mál fyrir okkur......en samt.......
Jæja best að fara að reyna að koma niður þessu svíni sem bíður eftir mér hérna niðri...bið að heilsa ykkur í bili..
*miðvikudagsknús*

Vá viljiði spá í leiðinlegri stjörnuspá fyrir daginn í dag......
Vogin: Gættu þess að æfa þig reglulega svo þér fari fram og hlustaðu á undirmeðvitund þína þegar líkami þinn lætur þig vita.

Engin ummæli: