12 júlí 2002

*Aftanákeyrslugeisp*
ohhhhhhhhhhhhhhh............vitiði hvað........nú vill ég ekki hljóma einsog einhver karlremba en vá........konur og bílar (sumar í það minsta)...."shit"......Ég var í makindum mínum að keyra, með múttuna mína í bílnum.....ætli við höfum ekki verið á svona 40-50 km. hraða, eða bara í takt við umferðina, allir að skoða þetta blessaða tívolí.....Var svona að spá með sjálfri mér hvað þetta væri nú frekar hættulegt því að það væri flestir að fylgjast með þessu tívolí en enginn var að fylgjast með umferðinni eða því sem að þeir væru að gera....well, græna ljósið framundan verður gult og vitir menn gellan fyrir framan mig NEGLIR niður - STOP.....og mín bara aftaná gelluna ......... arg....... hún var liggur við stop áður en að ljósið náði gulu........ég var svo bitur og reið mar......well bíllinn minn er einsog lítil sæt beygluð sardínudós eftir blessðu dráttarkúluna á þessum bíl og hennar er allur brotinn að aftann............ég hringdi á lögguna, það tók hana svona 10-15 mínútur að koma á staðinn....ég var svona frekar sjeikí og stressuð fyrir og vitandi það að ég þyrfti að fara inní löggubíl bætti nú ekki úr sök......ég er með svona löggufóbíu.......er dauðhrædd við hana....!!! Well þeir komu og voru hinir yndislegustu, báðir komnir á besta aldur og voru svona frekar pabba/afalegir við mig....hihih....þeir horfðu á mig hristast í aftursætinu af stressi og í hálfgerðu sjokki.is og spurðu hvort að það væri ekki allt í lagi með mig og hlógu svo hihhi.....Það sem að mér fannst alveg snilld var þegar að þeir spurðu hvort að ég væri ekki með ökuskírteinið með mér (tíndi því náttúrulega fyrir löngu og hef ekki tímt og nennt að fá mér nýtt), ég alveg "nei sko ég tíndi því á djamminu síðustu helgi og ætlaði einmitt að fara að sækja um nýtt í þessari viku" þá tók þessi eldri talstöðina og fór að tala tungum við röddina á hinum endanum hihihih....alveg "B-14, tékk, C C"........hihihih....ég var næstum sprungin úr hlátri því að þeir töluðu svona saman í þessa blessuðu talstöð í svona 10 mínútur, held að þeir hafi fílað sig svona einsog í einhverri bíómynd, bara svona hasarmynd af bestu gerð *glott*.....svo glumdi allt í einu í þessum blessuðu hátölurum........"URÐUR HARÐARDÓTTIR - B RÉTTINDI - CLEAN" og vá þá alveg missti ég mig hihihihhih.......well ætli maður sé ekki í svona hálfgerðu sjokki enþá og ég get hlegið að þessu þar til að ég fæ blessuðu rukkunina frá tryggingafélaginu.........hvað er þetta með að vera alltaf í 100% órétti þegar að maður keyrir aftaná.....mér finnst ég ekki alveg hafa verið í 100 % órétti, bara þú veist 80% hljómar réttara því að mér finnst svona konan eiga góða sök á þessu líka, svona pínu.........en well það þíðir ekki að velta sér uppúr þessu.........og vitiði hvað "maður á aldrei að sjá eftir neinu"......það er mitt mottó.......
Hmmm jæja nú verð ég að fara að vinna.....það er geðsturlaður föstudagur hjá DV framundan.....varð bara að koma þessu út úr sísteminu mínu...deila þessu með ykkur .....
Bið æðislega vel að heilsa ykkur og vona að þið eigið ÖLL eftir að eiga alveg lovlí dag!!
*beyluknús*

Engin ummæli: