22 júlí 2002

Góðan dagin litlu gullfiskarnir mínir!
*geisp*, vá hvað það er nú orðið langt síðan að maður hef skrifað....lá með flensu næstum alla síðustu viku og hafði ekki orku í að lyfta höfðinu, hvað þá komast á netið einhverstaðar til að skrifa....well maður er komin á lappir núna og nú ætla ég og skal vera dugleg að skrifa hérna á þessa blessuðu síðu, held samt sko að ég sé búin að vera með einhverskonar "bloggkvef" og þess vegna hef ég ekki getað skrifað neitt hér....er með skrifteppu í puttunum mínum......hmmm
Það hefur nú svosem ekkert nýtt og spennandi á daga mína drifið undanfarið....reyndar eru fullt af litlum fuglum búnir að fljúga framhjá og hvísla alskyns leyndarmálum í eyrun mín en maður fer nú ekki að gaspra þeim svona hérna á internetið *glott*...
Það eru komnar fullt af nýjum myndum inná síðunni hennar kollzilla, einhverjar myndir af "rokkslæðutónleikunum" sem voru á Vídalín síðasta laugardag....mikið stuð og mikið um áfengi hihhihi......af myndunum að dæma !!! Þetta voru víst brjálæðislega skemmtilegir tónleikar hef ég heyrt.....ég verð nú að fara að skella mér aftur, þær klikka aldrei þessar elskur!
Well nú ætla ég að fara að gera upp hérna í vinunni.....er að fara á einhvern helv. fund......."hvernig eigum við að bjarga DV" fundur (úps...má ekki segja svona)...Bið bara að heilsa ykkur öllum.......
*knús allann hringinn*

Eitt svona test eitthvað.......

i am



what sexual performer are you?

Engin ummæli: