í dag: * Gekk ég niður gamla konu í Bónus.. * Er ég búin að hella 2var yfir mig heitu kaffi.. * Er ég búin að brjóta eitt glas... * Reyndi ég að borga í búðinni með ökuskírteininu mínu... * Skyldi ég ekkert í því af hverju alltaf var á tali hjá múttu gömlu - í aaaallan morgunn - sat og sló inn mitt eigið símanúmer... * Er ég oftan 3 og oftar en 4 sinnum kallað samstarfskonu mína Rakel þegar hún heitir Ingibjörg... * Ég beit í eina eplið (af möööörgum) í skálinni sem var myglublettur á og beit akkúrat í mygluna....
...Ég er svo utanviðmig eitthvað núna - í dag..finnst líka einsog allir taki eftir því...
...Hef það svona á tilfinningununni að ég sé með herðatré hangandi aftanúr peysunni minni, klósettpappír hangandi niðrúr buxnaskálminni, huge graftarbólu á nefinu, með hænu/hana í eftirdragi syngjandi "dont walk away" með Hebba Gumm...
...það er fyndið að blása (laust) uppí nefið á ungabörnum og gefa þeim sítrónusneið að naga *heh*