23 september 2003

ný vika...

Hlú hlú gott fólk og gleðilegan þriðjudag....já kuldaboli er heldur betur farinn að segja til sín, bíta fólk í nebbana og kinnarnar....*brrr*
Já lífið gengur bara sinn vanagang hjá mér og mínum, gengur bara alveg ótrúlega vel í vinnunni....það er langt síðan að ég hef verið í vinnu þar sem að mig hreinlega hlakkar til á morgnanna að mæta...úfff hvað það er góð tilfinning...það er svo leiðinlegt þegar að mann kvíður fyrir eða finnst maður vera hálf þvingaður til að fara, æi skiljiði hvað ég meina??? Finnst erfiðast að vera burtu frá litlunni minni í heila 8 tíma á dag, en það gengur samt vel því að hún er í góðum höndum (hjá mömsu góðu)......já það er nú gott að eiga góða að og gott líka ef að maður gerir sér grein fyrir því hvað maður er ríkur....
Úfff vitiði hvað ég lenti í um daginn, þvílik endeimis vitleysa hihihi...ég var stöðvuð af lögreglunni fyrir að gefa ekki stefnuljós....."hvað er það".....hefur löggan ekkert betra að gera og annað fólk með meira á samviskunni að "bösta"....ef að ég fæ einhverja sekt þá held ég að ég muni fríka út hihih....ég meina "halló"....ég keyri framhjá blessuðu löggustöðinni á hverjum degi og hver einasti löggubíll sem að beygir inná svæðið þar gefur ALDREI stefnuljós, ég ætla að fara og sekta þessar elskur með heimatilbúnum sektum hihihi.....já, já og mæla hraðann hjá þeim með hárblásaranum mínum.....
úfff....komið út í vitleysu....ætla að fara að vinna ........ mikið sem að bíður mín....vildi bara heilsa uppá ykkur.....
*klípíkinnar*

09 september 2003

6 m?na?a...

Góðan daginn gott fólk, jæja er í vinnunni og gengur bara vel, algjör draumur....yndislegt fólk og yndislegur staður...sólin skín....já það liggur alveg ótrúlega vel á mér í dag....litla prinsessan mín á 6 mánaða afmæli í dag..."til hamingju með daginn engill"....
jæja vildi bara heilsa uppá ykkur....vona að dagurinn verði sólríkur og góður hjá ykkur öllum
knússss

05 september 2003

myndir á barnaland.is

Vildi bara láta ykkur vita (ykkur sem eruð alltaf að rukka :) ) að það eru komnar nýjar myndir af prinsessunni minni inná síðuna hennar!!

04 september 2003

Fimmmmmmtudags subbuveður...

Hlú hlú litlu dýr....enn og aftur byrja ég á því að afsaka slök skrif mín hér inná síðunni!! Er núna hjá Hrönslunni minni og fékk að skjótast í tölvuna hennar til að heilsa uppá ykkur! Það er svosem ekkert nýtt í fréttum af mér og mínum, sú stutta blómstrar og þyngist...."allt gengur einsog í sögu".....Ég byrja í nýju vinunni minni á mánudaginn kemur og vá hvað ég hlakka rosalega til ... get varla beðið.....er semsagt að fara að byrja að vinna í Pennanum Austurstræti með Kollunni minni *jeij*! Jú það er nú pínu leiðinlegt að kveðja stelpurnar á DV, alltaf erfitt að hætta þegar að það er svona blómstrandi fínn mórall og maður á svona góða vini! Verðum bara að vera duglegar að halda sambandi...
Kallinn kom heim af sjónum í fyrradag og verður alveg í 5 daga stoppi, lúxus það :) Ég hef komist að þeirri niðurstöðu að hann er hetjan mín, ekki gæti ég farið svona lengi í burtu frá barninu mínu og bara lífinu í landi....já þið "sjómenn" eruð minar hetjur......hetjur gærdagsins, dagsins í dag og morgundagsins!!! Það er alltaf eitthvað fólk sem að er að tala um hvað þessar elskur (sjómenn) hafi það nú gott.....vá viljiði staldra aðeins við og pæla í því hverju þeir eru að fórna.....æi ...... er núna farin að blaðra bara....pirr pirr :)
En jæja nú ætla ég að hætta að vera leiðinlegi gesturinn sem að hangir í tölvunni og fara að tala við þær stöllur, Hrönslan er að gefa litlu og mér sýnist maukurinn vera kominn uppá enni og inní eyru....best að fara að skerast í leikinn...."before it´s to late"....
*klípílæri*

29 ágúst 2003

...

Góða kveldið gott fólk og gleðilegan föstudag.........vona að vinnuvikan hafi ekki verið of strembin hjá ykkur....ég er að reyna að njóta síðustu daganna minni í fæðingarorlofinu mínu, byrja í nýju vinnunni minná núna 8 sept. nk og ég hlakka alveg rosalega til. Finnst frekar leiðinlegt að yfirgefa stelpurnar mínar uppí DV en ég meina svona er þetta bara.....sú stutta útskrifaðist úr sundinu í dag, ekkert smá stolt....fyrsta útskriftin hihihih....
Nú er ég stödd í húsi föður míns með brósa, erum bara að fara að leggjast í fleti og horfa á video og slappa af eftir góðan mat...........svona eiga föstudagar að vera "LETI".....en ég ætla allaveganna að hætta núna, ekki vera leiðinlega konan sem að hangir bara í tölvunni...nota bara hvert tækifæri sem að bíðst til að koma aðeins hérna inn og láta vita af mér...
Ég kveð ykkur bara að sinni og vona að helgin verði góð....

21 ágúst 2003

Virus dauðans....:(

Hluhlu gott folk, og sorry endalaust að eg hef ekkert skrifað, tölvan min "ER" með virus og eg dett ut a 3 minutna fresti og get ekki gert neinar kommur yfir stafina einsog þið kanski sjaið :(....ekkert sma mikið bögg!! Það er annars bara allt mjög gott að fretta af mer og minum, við mæðgur erum bara að reyna að standa okkur þar sem að kallinn er farinn a sjoinn....skritið að vera svona aftur einn eftir svona langt og gott luxuslif með manninn og barnið heima, bara röltandi um bæinn otrulega happy með is....æi þið skiljið hvað eg er að reyna að fara er það ekki :)
Jæja nu er tölvan farin að telja niður og segja mer að hun muni slökkva a ser eftir 54.....52....49 sek....svo að eg kveð bara að sinni vildi bara lata vita að eg er a lifi (þott otrulegt se)......
kossar og knus til ykkar allra...
ja litla gellan min er komin með svona heimasiðu a barnaland.is.......þið sjaið það efst a siðunni minni undir "Prinsessan"......bara gaman....

20 júlí 2003

...Argasta snilld..........

.....jæja maður er þá bara ekki jafn heimskur og maður lítur út fyrir að vera *glott*.......þetta er allt að koma til hjá mér....tapaði bara nokkrum heimasíðuurlum en ég mun vinna í því að bæta þeim við hægt og rólega.........
*jeij* þetta virðist allt að vera að virka hérna hjá mér..........nú er bara að halda ótrauð áfram og ekki gefast upp *hihih*....þetta er reyndar svolítið bleikt fyrir minn smekk en samt svo simple eitthvað að ég ætla bara að taka á honum stóra mínum og læra að lifa með bleika lúkkið sko........
Jæja gott fólk, það eru róttækar breytingar í gangi....þar sem að ég var komin með gubbuna uppí háls á gamla lúkkinu og virðist ekki geta komið íslensku stöfunum á framfæri :)...þið verðið bara að vera þolinmóð "mæ litle vons"...

19 júlí 2003

Bara sma prufur i gangi nuna....... :)

12 júlí 2003

SKIL EKKI, hvad tharf eg ad gera til ad islensku stafirnir komi inna siduna??? !!!!

05 júlí 2003

Góða kveldið elsku snúllurnar mínar, ég ákvað að droppa aðeins hérna inn þar sem að ég var að greiða reikninga í þessum blessaða heimabanka minum (snilld þessi heimabanki). Langaði að setja mynd af litlu minni hérna inná síðuna mína er algjörlega búin að gleyma hvernig í óskupunum það er gert......sniff......þið verðið því bara að nota ýmindunaraflið í bili, eða ekki nema þá einhver sé svo vænn að geta kennt mér það !!! Annars er bara allt alveg rosalega gott að frétta.....ég blómstra, lífið blómstrar.....allir blómstra hérna í kringum mig.....lífið er bara algjört smjör þessa dagana og ég er alveg að fíla það í ræmur!! Vildi óska að ég gæti látið öllum líða jafn vel og mér líður í dag..........sendi ykkur öllum alveg úber góða strauma svona yfir netið...hmmm...hvað er annars í fréttum......já ég fékk alla tengdafjölskylduna í heimsókn síðustu helgi (hún var í viku) því að ég var að skíra prinsessuna mína.....urðum að hafa þetta mjög lítið boð því að ég á svo ógeðslega stóra fjölskyldu og fjárhagurinn leyfði ekki meir í bili......well held bara grand veislu þegar að ég gifti mig :) Já allt gekk einsog í sögu, litlan min fékk nafnið hennar ömmu sinnar "Anna Þrúður Auðunsdóttir" og ber það með stolti, hún var hin rólegasta alla athöfnina sem að var haldin heima hjá pabba mínum og fjöllu...... þetta var vægast sagt YNDISLEGASTI dagur lífs míns......ég er reyndar alveg miður mín að hafa ekki getað boðið öllum sem að mig langaði að bjóða, verð að viðurkenna að það voru nokkrar manneskjur sem að ég fann að vanntaði þarna en ég veit að þær voru þarna bara hjá mér í huganum.....bæti þeim þetta upp einhverveginn!!!
Wellý ég ætla að fara að koma mér í bólið ...... eða koma mér vel fyrir og horfa á CSI og lognast út af ......
Bíð ykkur bara öllum góðrar nætur og vona svo ynnilega að draumarnir verði ljúfir!!!!
klípíeyra

#Kolla m?n: hvernig var í sveitinni ??.....alltaf gott að komast burt úr (h)amstri hversdagsins og njóta náttúrunnar!!!
#Hugrún: hvernig hefur litli bumbubúinn það, hvernig gengur allt saman??
#DV-megabeibs: Hvað er að frétta, ég er farin að halda að Stekkjastaur hafi ráðist fyrr til byggða og bara étið ykkur!?!?!?
#Hrönnslan mín: Einn dagur í einu, er það ekki máli?.....??

23 júní 2003

Gleðilegan mánudag litlu dýr......er nú stödd hjá henni mömsu minni að væflast eitthvað á netinu fyrir hana, leita að ódýrum fargjöldum til Parísar.....ohhhhhh......og mig langar geðveikt að fara til útlanda......hef ekkert farið síðan 2000 *sniff*......fer bara út í anda.......annars er bara allt gott að frétta af mér og mínum ...... Anna Þrúður litla prinsessan mín blómstrar bara.......erum byrjuð að fara með hana í ungbarnasund, sem er algjör snilld.......hún er samt ekki alveg að fíla sig, en hann (kennarinn) segir að þetta taki bara mis langann tíma........hún er ógó lin og sæt í rauðum sundbol með pilsi.......algjört megabeib!! Ég hef sjaldan séð svona stórt samansafn af litlum, blautum, krumpuðum og sætum börnum.....Mig er nú nett farið að kvíða fyrir að byrja aftur að vinna, tíminn líður svo hratt að það er alveg með ólíkindum, ég verð búin að ferma lilluna áður enég veit af *hihiihih*. Það er voða lítið annað að frétta af mér þessa dagana, er bara í 150% vinnu við það að vera mamma og nýt þess bara í botn......ég get sagt ykkur það að þetta er BESTA vinna sem að ég hef nokkurntíman verið í og mæli eindregið með henni hihiihhh.....Það er svo skrítið, eftir að ég varð ólétt þá fannst mér allir vera óléttir í kringum mig.......þetta er smitandi dæmi sko "airborne".......nei ég meina hafið þið ekki tekið eftir því, t.d. þegar að maður kaupir sér bíl þá allt í einu sér maður bara alveg eins bíla allt í kringum sig......eða kaupir sér einhverja flík......æi vitiði ekki hvað ég meina.....?? En jæja, þarf víst að halda áfram að vafra fyrir hana móður mína og finna besta dílinn.......Ég bið bara að heilsa ykkur öllum í bili......vona að þið hafir það alveg rosalega gott........njótiði lífsins og njótiði þess bara að vera til!!!!!
*rembingsknús*

30 maí 2003

Hlú hlú litlu hamstrarnir mínir!!!
Vááá hvað það er vangefið langt síðan að ég hef látiðsjá mig hér, er alveg að springa hef svo mikið að segja ykkur öllum, maður veit varla hvar eða hvernig maður á að byrja...hef svosem ekki mikinn tíma núna því að lillan mín er ekki enn farin að sofa...eg semsagt eignaðist litla prinsessu 9 mars síðastliðin, það eru fullt af myndum af henni á síðunni hennar Kollu. Það hefur semsagt ótrúlega margt gerst á stuttum tíma sem að mig langar að deila með ykkur, veit bara ekki hvernig í óskupunum ég á að fara að því þar sem að ég hef ALDREI tíma til að vera svona á netinu. Fékk bara formlega kvörtun í dag að það hefði ekkert gerst á blogginu mínu í MARGA mánuði og verð því að sýna smá lit og pikka smá. Ég vona að þið hafið öll haft það alveg rosalega gott, ekki of gott því að það er víst ekki svo hollt........hihih..djók........æi æi.......er að glugga hérna á "Grunna Pollinn" á Skjá einum og er alveg með gubbuna uppí háls.......þetta er eitthvað svo þreyttur og sorglegur þáttur, ég skil ekki alveg hvað fær fólk til að fara í svona.........hmmmmmmmm.....*hugs*..........
Wellí ég verð að fara sú stutta er eitthvað orðin þyrst og maður verður víst að fóðra dýrið.........hihih........held að hún sé bara að nota mig ..........
Knús og kreist til ykkar allra

03 febrúar 2003

Góðan daginn gott fólk!!
Vá hvað maður hefur nú verið lélegur að skrifa á þetta blessaða blogg sitt......nú er maður offissíalí komin í barnseignarfrí svo að ég hef ekki lengur net til að hendast á og blogga þannig að það verður lítið um það á næstunni....ég reyni samt að komast á netið aðeins hjá henni múttu minni til að kanna statusinn á meilinu mínu og kanski henda inn nokkrum orðum á bloggið ..... ég er bara svona að láta vita að þó að ég skrifi ekki í einhvern tíma þá er það ekki af því að ég er búin að gleyma ykkur eða neitt sollis *bros*.....það gerir mar víst aldrei!!
Annars er bara allt gott að frétta, maður bara STÆKKAR og stækkar með hverjum deginum, eiginlega bara hverri klukkustundinni eða mínútunni....er farin að telja niður þar til að kúlubúinn á að koma í heiminn.....spenningurinn á heimilinu orðin nær óbærilegur *bros*
Djö er skrítið að vera ekki að vinna, þetta er fyrsti dagurinn og maður er svona með smá samviskubit að vera ekki að gera neitt.....maður á víst að njóta þess og slappa af því að það verður ekki gert mikið af því þegar að kúlubúinn er komin í heiminn......það er víst núna eða aldrei hihhihih.....sjáum nú bara til hvernig þessi blessaða afslöppun á eftir að ganga fyrir sig. Var vöknuð í morgun eldsnemma og tilbúin til að fara í vinnuna þegar að ég fattaði það að það væri bara alls engin vinna í dag hjá mér *bros*....svekkjandi en á sama tíma gott að geta lagst aftur bara uppí og kúrt aðeins lengur....ég skal lofa að hugsa til ykkar allra þegar að ég sef út á morgnanna *glott*.
Wellí ég þarf að fara, er að fara að fá æskuvinkonu mína í mat á eftir sem að ég hef ekki hitt í 3 ár eða eitthvað svo að maður þarf að snurfusa hérna aðeins áður en að hún kemur í höllina......
*knúsknús* og lofa að skrifa sem fyrst aftur......

30 janúar 2003

*glott*.....bara snilld þetta dæmi hérna, mæli með að allir skoði þessa Kamasutra síðu og læri smá af henni....

29 janúar 2003

Datt inná Þetta blogg af tilviljun........finnst afi þessa bloggara bara snillingur.....hihihhi kíkið á etta!!!
Guð minn góður hvað ÞETTA er skemmtilegur leikur.........hiihhihihi.....ég reyndar get ekki neitt í honum en það er bara gaman...Pictionary klikkar aldrei!!
*hnerr*
Vá hvað það er langt síðan síðast, erum (ég og kúlubúinn) búin að vera rúmliggjandi heima í meira en viku með flensu dauðans *ojjj*......kallinn búinn að vera út á sjó og "mamsa hjúkka" ekki búin að yfirgefa rúmstokkinn síðan ég lagðist í flensu....alltaf að koma með rúkjandi súpu og te *bros*...........þær eru nú algjörir englar þessar mömmur !! Held ég hafi nú launað henni greiðann með því að smita hana þessa elsku, hún liggur nú heima með hor........ætli maður fari ekki til hennar eftir vinnu og malli eitthvað gott í gogginn....
Það hefur alveg ótrúlega lítið gerst þennan tíma sem að ég hef ekki bloggað......ég gæti alveg þrusað hér einhverri rúmleguræðu en ég held að ég sleppi því hihihiih....ekki skemmtileg aflesning það *bros*
Wellí jú, það fæddust 2 prinsar um síðustu helgi......samstarfskonur mínar 2 voru að eiga og láu saman - þvílíkir englar.........ég fór í tékk á laugardaginn síðasta og laumaðist til að fara og kíkja á þá og vááááá´......ekkert smá sæt lítil (samt ekkert svo litlir) fyrirbæri þar á ferð, litlir og krumpaðir *glott*..........Til hamingju með þetta stelpur mínar (Ásta og Halldóra) !!!!
Æi ég ætla að fara að vinna og reyna að gera eitthvað að viti, langaði bara svona rétt að heilsa uppá liðið og láta vita að við erum á lífi!!!
knús

20 janúar 2003

Góðan daginn gott fólk og GLEÐILEGAN mánudag.........*geisp*
Æi maður er alltaf svo lengi að trekkja sig upp og komast af stað á mánudögum.....Ég fór inná ógó sniðuga síðu þar sem að maður getur séð hvað maður héti ef að maður væri "hobbiti"......ég héti sko Berylla Toadfoot of Frogmorton *glott*......ekkert smá nafn mar.....ef að þið viljið eyða tímanum ykkar í svona rugl líka þá farið þið bara inná ÞESSA síðu.
Helgin mín var bara róleg og fín, eða bara svona "lala"........svona tipical molvörpuhelgi, skrapp reyndar aðeins í ammæli hjá henni Kollster minni sem var haldið á "Ölstofunni" á föstudaginn, hitti marga gamla og góða kunningja og vini sem að ég hef ekki séð í LANGAN tíma......bara gaman.....og líka gaman að sjá fólk missa andlitið sem að vissi ekki af kúlubúanum.....það varð svona einsog fífl *bros*......en bara gaman að hitta alla og svona kets up on þe óld tæms. Það hafa einhvernveginn allir breyst svo mikið enn á sama tíma er það sama gamla góða liðið, skiljiði. Kollster var náttúrulega í SSSSSinu sínu, farin að drekka svolítið hratt, bara glöð, sæt og pínu tipsy.....hún er nefnilega svona veislutýpa....elskar að halda veislur og vera svona gestgjafi.......svolítið svona einsog Monica í Friends *glott*. Wellí ég var bara farin heim frekar snemma, þreytta bumbukonan og SVANGA hihihih....svo fór laugardagurinn minn bara í rugl eiginlega, var bara hálf slöpp og tussuleg eitthvað, svaf bara eiginlega allann daginn......sofa, vakna-pissa, sofa, vakna-borða, sofa, vakna-pissa.............etc......vaknaði svo mega rugluð í hausnum um 5 leytið á laugardagsnóttina, vissi ekkert hvað snéri upp né niður, hvaða dagur var eða hvað var í gangi.....bara óþæginleg tilfinning. Sunnudagurinn fór svo bara í það að vinna til 20 um kvöldið og svo fórum við Kúlubúinn í geðveikann mat heim til pabba og co......*slurk*.....ummmm.....nú er ég orðin svöng aftur - bara á því að minnast á matinn.....fengum ógó gott lambakjöt, bakaðar kartöflur, salat, ógó góða brúna sósu, gular baunir.............etc.......og í eftirrétt var svo heimatilbúinn ís með bestu íssósu í heimi.....Marsíssósa a la Katla......*slef*. Síðan var stefnan tekin heim á Njáluslóðir þar sem að ég lagðist útaf fyrir framan imbann, skellti "The Bonecollector" í tækið - dáðist af fegurð og fullkomnun Angelinu Jolie og Denzel W.......með múttu (sem ég hafði sótti eftir matinn á leið minni heim)......og datt svo bara útaf.....og svaf á honum væra mínum til klukkan 8 í morgun....*geisp*.........
Hmmm....held að þetta sé nú helgin mín í hnotskurn......ekki merkileg en góð samt sem áður *bros*
Wellí ætla að halda áfram að vinna.....vona að dagurinn hjá ykkur verði nú góður, svona í takt við sólina sem er að teygja sig yfir húsþökin.....



Jæja Kreisígörl hér kemur ein langþráð hjá þér hihihh.....djö myndast maður vel.....ég held að ég ætti nú að fara út í módelbransann *bros*

13 janúar 2003

Allir að KJÓSA !!!!!!! Tónlistarverðlaun Radio X og Undirtóna ....

10 janúar 2003

Hellú hellú litla fólk og gleðilegan föstudag!!
Jæja nú er þessi blessaða vinnuvika loks að fara að syngja sitt síðasta - eða auðvita bara hjá okkur sem ekki vinnum á morgunn eða hinn *bros* (heppin við).....Ég er búin að vera endalaust lengi að skrifa þessa einu blessuðu setningu því að það hefur verið alveg ágætlega mikið að gera hér í vinunni og kúninn gengur víst ávallt fyrir.....eða svo er mér sagt og svoleiðis vill ég allaveganna hafa það þegar að ég er þeim meginn við borðið *bros* Veit ekkert leiðinlegra en að bíða eftir afgreiðslu en fá hana ekki því að viðkomandi stúlkukind ( eða einhver drengstauli að sjálfsögðu) er of upptekin við að tala um atburði helgarinnar við félagann/vinkonuna í símann eða eitthvað svona......*pirr*....ég lendi alltaf í svoleiðis gjaldkerum þegar að ég fer í bankann.....hmmmm.....vá af hverju í fle er ég að röfla um þetta.....hmmm....
Ég lennti af slysni inná alveg stórskemmtilegri síðu, rosalega mikið af skemmtilegum pistlum, greinum, pælingum........mjög góður pistill um ísl. þjóðernissinnaflokkinn td..........mæli með að þið lesið hann og svarið sem að þeir senda svo þessir *****.......
vaaaaaaaaaaaaaaaaaaaa......brjálað að gera allt í einu.....bið að heilsa......


multi-orgasmic



Your Hidden Sexual Talent is Being Multi-Orgasmic


Whether you're on your back or on your knees,

You'll get off as often as you please.

While some may have few and few may have some.

You're the one who always can cum.



What's *Your* Hidden Sexual Talent?

More Great Quizzes from Quiz Diva


09 janúar 2003

Það er ekki leiðum að líkjast........þó svo að það hafi nú endað fyrir henni einsog gerði þessari elsku .......samt flott gella mar.......


bombshell
Which female sex symbol are you?

brought to you by Quizilla

08 janúar 2003

Jæja var að breyta könnunni minni, endilega skellið ykkur inn og svarið.......
Hef svosem ekkert merkilegt að segja í dag, er að LEKA niður á borðið hérna af þreytu og svengd......hvað ætti maður að gúffa í hádeginu hmmmmm??
Hvað er eiginlega málið með Indversku prinsessuna.......það virðast allir vera með hana á heilanum þessa dagana *hugs*

06 janúar 2003

juuuuu.....mig langar í svona......ekkert smá sætur........

Jólin eru búin þannig að maður þarf víst að breyta blessaðri könunninnnnnnniiiii..............
Góðan daginn gott fólk!!
Gleðilegt nýtt ár.......betra er víst seinnt en aldrei, ekki satt *bros*?? Hvernig voru svo hátíðarnar hjá ykkur, mikið étið, drukkið, dansað, slappað af, nartað..........??? Nú held ég að fólk sé alveg að tapa sér.....eða sko.....vííííí.....það eru byrjaðar útsölur og fólk er bara að fríka út.....ég hélt einhvernveginn að allir hefðu nú verið nógu duglegir að "jóla vísakortin sín"......en svo virðist ekki vera!! Kanski er þetta bara öfundsýki í mér, aldrei að vita *bros*.
Wellí nú erum við loksins flutt inní nýja húsið...ekkert smá gott. Ég er samt ALVEG BÚIN á því mar, fengum að vita allt í einu að við þyrftum að skila af okkur 4 dögum fyrr en áætlað var þannig að þrífarinn og pakkarinn alveg settur á skrilljón........maður var á fjórum stanslaust í 4 daga.....heppni að kallinn var í landi til að hjálpa og Hrönsan líka - 2 naglar til að bera og svona, því ekki megum við bumbubúinn gera svoleiðis......frekar pirrandi, við vorum bara duglegust í að setja í kassana og þrífa (okkar deild þetta skiptið).........en nú erum við loksins komin í íbúð.....ekki svona stúdíó.......og líður báðum bara mjög vel. En vegna þess að þessu flýtti um 4 daga þá þurfum við að pakka og þrífa íbúðina sem að við fluttum inní líka......hihhihih......svolítið skrítið að taka uppúr kassa og setja í hann jafnóðum *bros*...........æi þetta verður alveg lovlí þegar að þetta er allt komið í stand...........
Er svona hérumbil búin með allt eldhúsið, þrífa alla skápa og inní og svona og svo þegar að ég kom heim úr vinunni í gærkveldi voru momsí og kallinn búin að vera allan daginn að rumpa upp stofunni, þannig að hún er öll að koma til líka...........vííííí.....mér finnst þetta allt eitthvað svo spennandi *bros*......Ætlum bara að mála loftin og taka baðið.....þannig að þetta verður allt orðið tipptopp þegar að kúlubúinn lætur loksins sjá sig......býð ykkur öllum í kaffi og kökur einn daginn af þessum *glott*
Wellí, þarf að halda áfram að vinna, vildi bara svona láta ykkur vita að við erum enn á lífi og höfum það bara gott........
*klípílæri*


pure
What's YOUR sexual fetish?

brought to you by Quizilla

27 desember 2002

Hellú hellú litlu jólasteikurnar mínar!!
Gleðilega hátíð......ég vona að jólin séu nú búin að vera góð og græðgisleg hjá ykkur öllum!! Við kúlubúinn erum búin að hafa það alveg lovlí yfir hátíðarnar, borða vel og opna fullt af gjöfum....bara gaman. Átti alveg yndislegt aðfangadagskvöld með múttunni minni, kallinum, kúlubúanum og grany........góður matur, kertaljós, lítið sætt jólatré, alveg ótrúlega mikið af jólagjöfum (miðað við aldur hihihihhih), yndisleg jólatónlist.........æi þið vitið.......alveg svona YNDISLEG stemning......allir saddir og sælir. Fékk nokkrar bækur í jólagjöf, byrjaði að lesa "Ísstelpan" (ispigen), danskar smásögur - eiga að vera skrifaðar fyrir börn en eru bara fyrir alla aðra en börn, alveg ótrúlega sértök bók/sérstakar sögur sem að ég mæli eindregið með, er svo að fara að lesa "Tolkien", ævisaga..........ég er nú ekki mikið fyrir ævisögur en mér finnst þessi kall ekkert smá spennandi, er búin að glugga aðeins í þessa bók og hún er bara nokkuð spennandi sko......þvílík ævi og þvílíkt hugmyndaflug sem að þessi maður var með!!!
Það er svo fyndið, það var svona "eldhúsþema" í jólapökkunum okkar í ár, fengum matreiðslubækur, eldhúsáhöld og búnað alveg hægri vinstri, kemur sér ekkert smá vel, nú þarf maður bara að fara að vera duglegur að expirimenta í eldhúsinu.........fékk 2 alveg ROSALEGA flottar kokkabækur........ein heitir "Bakað úr Spelti" og er hreinasta snilld og hin er "Framandi réttir"....hún er svona rosalega falleg eitthvað, allir réttirnir eru svo fallegir og litríkir eitthvað og ekki svona réttir sem líta bara vel út á myndunum í bókinni .... og þetta eru svona réttir sem að ALLIR geta gert.........ég þoli ekki svona kokkabækur þar sem að myndirnar eru einsog heimsfræg málverk en þegar að maður reynir að gera þetta sjálfur þá lítur þetta allt öðruvísi út........frekar svona einsog gubb á diski.......skiljiði hvað ég meina ???
Hihih, jæja en nóg af matseld og jólagjöfum........bros.......við erum búin að vera að pakka alveg á fullu, allt komið í kassa, bara 2 diskar og 2 glös, sjónvarp, sófi og rúm eftir, og auðvitað skrilljón kassar allt í kring....erum að fara að flytja 1 janúar í 101 Reykjavík........ohhhh......djö verður gott að komast af Seltjarnarnesinu, rokrasssinum.......það er alltaf rok og leiðindi þarna........bírr.....svo verður maður nær múttunni sinni og bara nær öllu og öllum........gott þegar að kúlubúinn kemur í heiminn.......hlakka ekkert smá mikið til mar........farin að telja niður dagana........
Wellí nú þarf ég að fara að fara, vildi bara svona láta vita af mér.......er með kött í fanginu sem er jafn stór og kálfur og hann er farinn að leka svona yfir lyklaborðið og orðið erfitt að skrifa.........
Vona að þið hafið það öll alveg súper gott það sem eftir er af þessari hátið........fríi.......
Jólaknús

23 desember 2002

Jæja nú er klokksí rúmlega 12 að miðnætti, offissjúallí komin "Þorláksmessa".........shit........jólin eru bara að skella á mar.......og neibbs, ég er sko ekki búin að öllu mar...hmmm....hef enn nokkra tíma til stefnu, þetta skal takast allt saman.....
Langaði bara svona að óska ykkur öllum gleðilegra jóla, vona að allir séu glaðir og gráðugir.......eða svona létt mátulega!!
Jólakossar og knús....
Ég langa í svona jólapakka frá einhverjum.........svona stóran HARÐAN.....

12 desember 2002

Sumir eru bitrari en aðrir........samt alltaf gaman að lesa biturleikann og pælingarnar hjá öðrum......*bros*
Æi, æi........ekki hafa það nú allir jafn gott um júlen ........ hmmm......maður er svo frekur að allt..........hmmmmm.....*þungthugsibros*......
Nú er Kollan mín á spítala í einangrun......og vil ég biðja alla að senda englana sína til hennar að passa hana..........hmmmmm
Thíhíhíhí........einsog Dill segir.........."ekki beinnt svona í anda júlene sko"........hihihih......samt alltaf gott að fá að vita hvernig "barbie" maður er hihihi.......fle


cumslut barbie



You Are Cumslut Barbie!


You come complete with press on suction lips,
portable wet wipes, and skin toner.



Add on "Spit-it-back" function sold separately.



Not recommended for children under age 6.



What Naughty Barbie Are *You*?

More Great Quizzes from Quiz Diva

11 desember 2002

Maður þarf víst að taka til í linkunum sínum..............svona jólahreingerningar........henda því sem að maður notar ekki og svona............ *bros*
KJÓSA KJÓSA KJÓSA
Aldrei varð maður svona af því að fá sér einum of mikið.......hmmmm
Æi hún Christina litla er alveg að tapa sér og sjálfsvirðingunni greyið......hmmmm

Djös.....ég er búin að vera að reyna ALLT til að gera svona Commenta kerfi á síðunni hans Teits og það er bara ekkert að ganga......bara að gera mig grænhærða og mjög pirrrrr.....*slaka* *bros*

Hmmm....Daddara......
Er búin að vera að fletta í gegnum heimasíður og annað.....bara gaman að sjá hvað það eru margir þarna úti með skemmtilegar pælingar og MJÖG misjafnar skoðanir...á lífinu og tilverunni....gott að vita til þess að einhver er svo til SAMMÁLA manni *bros*......

Hellú hellú litlu humrar.....
Jæja, bara 13 dagar til jóla......váááá....hvað þetta er fljótt að líða mar.....hmmm....
Mér er ekkert að takast að vakna á morgnanna, er að nudda stýrurnar úr augunum alveg til hádegis svona í skammdeginu........sé fyrir mér rúmmið mitt og litlu vekjaraklukkuna mína sem að mér tókst að "drepa" í morgun.....þetta var ekki planað morð eða neitt svoleiðis sko......ég ætlaði bara rétt að henda henni í vegginn til að slökkva á henni sko......en nei nei þegar að mín skreið framúr í morgun fékk ég bara langa vísinn uppí stóru tánna og snooztakkann uppí hælinn hihihh..........
Ég átti nefnilega einu sinni svona ógó sniðuga vekjaraklukku sem að leit út einsog fótbolti og maður slökkti á henni með því að henda honum eitthvað eða í eitthvað.....ekkert smá sniðugt.......en hún dó víst fyrir 2 árum eða svo.......held ég sé ennþá að jafna mig á þeim missi *glott*
Ohhh vitiði, ég er ekki alveg að fýla það að það eiga að vera "rauð" jól í ár.........heyrði það í fréttunum í gær og varð svona frekar mikið svekkt á þessu öllu saman......ég var samt að reyna að muna áðan hvort að það hefðu verið "hvít" eða "rauð" jól í fyrra og ég bara man það ekki......hmmmm.....munið þið það ????
Æi maður er svo erfiður, þegar að það er enginn snjór þá vill maður fá snjó ..... og svo þegar að hann loksins kemur þá bölvar maður honum............hihhihii.....Ég var meiri svona snjómanneksja þegar að litlu systkynin mín voru lítil því að þá gat maður látið einsog fífl, farið með þau á sleða ....... hoppað um allt í einhverjum ljótum snjógöllum og svona.........kemur ekki beinnt skemmtilega vel út í dag, ef að maður fer ein 23 ára gömul að renna sér niður brekkur með börnunum hihihh........bleeeeee
Það var snilldar jólaborðhald hjá okkur í vinunni (Skvísufélaginu) á laugardaginn, fórum öll ( 10 stelpur og 1 strákur) saman út að borða á Caruso.......allir mættir í sínu fínasta pússi um 8 leitið, allir voða jollí með fordrykk......spjallað um heima, geima, fæðingar, hægðir, kynlíf, kynlífshjálpartæki, fyrrverandi yfirmenn og starfsmenn, fylleríssögur og skandala, mat á öðrum stöðum........etc........ótrúlega gaman........síðan var okkur plantað við langborð í einu horninu svo að við vorum svona meira private og fengum þennan dýrindis 3 rétta málsverð.......þeir eiga bara hrós skilið þessir þjónar og kokkar.......að hafa þolað okkur....(eða liðið sem að var að drekka)......það voru skemmtiatriði, lottó og svo var gefið út svona "SkvísuFókusKlámHverjirVoruHvarBlað" sem að allir fengu að eiga.........hreinasta snilld........vildi óska að ég gæti sett það hérna á netið......sýnt ykkur það......wellí eftir matinn og mikla drykkju (og kaffidrykkju hjá okkur bindindisfólkinu *bros*) var haldið yfir á "Sportkaffi" *glott* þar sem að við vorum á einhverjum kokteil og skotlista á barnum.....þar var dælt í sig, dansað og spilað pool..........sumir enduðu einir uppá sviði dansandi línudans við "Justin Timberlake" og "Stebba Hilmars" á meðan aðrir dönsuðu einhverskonar súludans uppá borðum..........hihhihi.....það er bara hægt að segja að fólkið hafi verið orðið MJÖG skrautlegt en MJÖG skemmtilegt þegar að bumbukonan ákvað að yfirgefa gleðina.........Hópurinn hélt stíft áfram til 6 um morguninn og fékk maður alltaf update með sms alla nóttina......hihihihi......snilld......þetta er eitthvað sem að þarf að endurtaka......
Wellí er orðin það svöng að ég held að kúlubúinn borða mig innanfrá.........best að fara að gúffa einhverju í sig..........bið að heilsa ykkur í bili......
ble ble




Hún á ammæli í dag, hún á ammæli í dag...............hún á ammæli hún mamsaaaaaaaaa - hún á ammæli í daaaaaaaaaaaagggggg!!!
Til hamingju með daginn litlan mín !!!!!
*knús*


09 desember 2002

Hlú hlú litla fólk....
Mikið að gera hjá mér í vinunni......hef lítinn tíma til að skrifa í dag, lofa að eg verð voða dugleg að skrifa á næstu dögum....Helgin var bara vægast sagt frábær, loksins er þetta blessaða "skvísukvöld" sem að ég og Dröfn í vinunni erum búnar að vera að skipuleggja síðustu vikurnar búnar, það var á laugardaginn og allir skemmtu sér voða vel og svona, bossinn farin að dansa uppá borðum og sovna.......segi betur frá því seinna og skelli kanski inn nokkrum snilla myndum sem að voru teknar á þessu kvöldi....
Er líka að hjálpa Teiti að setja upp síðuna sína...hmmm

06 desember 2002

Pabbinn minn var að senda mér snilldar snilldar snilldar ritgerð á meili sem að eitthvert barnið hefur samið.......................

Ritgerðarhæfileikar og viska barnanna. Verkefnið var að skrifa um spendýr.

Brandugla (Asio flammeus)
Branduglan er fugl af ugluætt. Hún er spendýr. Spendýr fæða lifandi unga sem nærast á mjólk. Branduglan er meðal algengustu spendýra á Íslandi og í öðrum löndum ef það séu mörg tré, t.d. á Akureyri. Hún verpir eggjum sínum í stór eikartré á hálendinu. Hún býr til holur í trén með hornunum sem hún hefur á hausnum. Stundum detta hornin af og nefnist það hornafall. Fyrst eftir varpið drekka ungarnir mikla mjólk. Hún er mjög holl en getur valdið hjartasjúkdómum, sérstaklega ef sjúklingurinn reykir mikið. Það skeði svoltið fyrir frænda minn. Hann reykir svo mikið að hann er dáinn núna. Stundum drekka ungarnir of mikla mjólk. Þá þenjast þeir út svo að eggin brotna og ungarnir fljúga til heitu landanna. Ég fór einu sinni til heitu landanna með pabba og mömmu. Þar þarf ekki að nota húfu og vettlinga ef það sé nóg fiður á ungunum. Það ver þá fyrir hættulegum geislum sólarinnar. Mamma sólbrann illa í ferðinni því ósonlagið er svo þunnt og svo eru líka gróðurhúsaáhrif og súrt regn. Uglur og leðurblökur eru einu spendýr á Íslandi sem geta flogið. Þess vegna er auðveldara fyrir þær að safna hunangi og svoleiðis ef mjólkin sé búin. Aðal varpstöðvar uglunnar eru í Ódáðahrauni þar sem eru mörg tré. Sennilega eru Þær útdauðar núna vegna ósonlagsins. Það er útaf spreybrúsum og svoleiðis.
Alltaf er að bætast við nýtt og nýtt fólk í bloggheiminn..............litli humardrengurinn Teitur var að starta síðu, það verður gaman að fylgjast með þeim eistaka dreng.........*klappklapp*

05 desember 2002

Datt inná svona test inná síðunni hennar Guðnýjar og bara varð að taka það............ég sá að hún bragðaðist einsog súkkulaði og var að vonast til að gera það líka en nei nei.............en ég hljóma nú ekkert verr.......*glott*


fruit loops



You Taste Like Fruit Loops!


Sweet, colorful, and crunchy.

With enough chemicals to kill

A family of four. Sugar coated fangs!



What Do *You* Taste Like?

More Great Quizzes from Quiz Diva

03 desember 2002

Hlú hlú litlu smurostbörnin mín!!
Mikið ansk....hefur maður staðið sig illa að skrifa hérna á bloggið......einhver "jólastubbur" farinn að kvarta og svona *bros*......
Vá pælið í því, það eru bara 21 dagur til jóla....þetta er svo fljótt að líða....ég keyrði aðeins niður Laugarveginn í dag og það fór um mig svona smá jólafiðringur, allir eitthvað svo glaðir, fullt af fólki....vantaði bara jólasnjóinn.........ohhhh.....mig hlakkar svo til að labba niður laugarveginn á Þorlák, það er svo mikill stemmari sem að fylgir því....nema þeir sem að tapa jólaandanum ofaní "jólabjórinn", ég sá því miður allt of mikið af svoleiðis fólki síðasta Þorlák......vá myndi maður nenna því að vera þunnur á aðfangadag...ég meina "hvað er það".......ég man einhvertíman þegar að ég var að vinna í Pennanum Austurstræti á aðfangadag og það kom inn maður klukkan 10 um morguninn alveg skræl þunnur, hann hafðir tapað sér ofaní bjórinn daginn áður og hafði gleymt því að kaupa gjafirnar í allri drykkjunni og við þurftum bara að gjöra svo vel að finna gjafir handa allri familíunni á nó tæm...........það var ekkert smá sorglegt mar..........enda sögðum við stopp þegar að við áttum að fara að semja og skrifa á öll kortin líka.........en svona er víst lífið stundum......
Jammogjæja......það er bara annars allt hið besta að frétta héðan úr heiðardalnum (eða hvernig sem að þetta á að hljóða).......við kúlubúinn bröggumst bara mjög vel, erum orðin stór og stæðileg *bros*.........fórum í skoðun í gær og litli/litla bara orðin 1 kíló......hmmm og alveg heilir 35 cm........þetta hljómar kanski ekki stórt en þegar að maður fer svona að spá í þetta þá skil ég þetta ekki alveg, hvernig kemst þetta fyrir þarna inni........hiihihhi.....miklar pælingar í gangi........
Wellí, er að vinna svo að ég hef ekki tíma til að skrifa meir í bili........vildi bara láta vita að við erum frísk, spræk og lifandi........
bið bara að heilsa ykkur öllum.....
*jólaknús*

*æðiæðiæði.......allir að muna að opna súkkulaðidagatalið sitt á morgnanna og bursta svo tennurnar með strumpatannkreminu sem að fylgdi með*

26 nóvember 2002

Góðan daginn gott fólk !!
Jæja, barasta komin þriðjudagur og læti.....víííí......sem að þýðir að á morgun sé miðvikudagur (skörp stelpa *glott*)........ég mætti til vinnu fyrir klukkan 8 og vá hvað það munar miklu þessi litli klukkutími sem að maður fær að sofa lengur.....well manni finnst muna geðveikt ef að maður "snoozar" einu sinni á morgnanna hihihihih....ég er allaveganna háð þessum blessaða litla takka á klukkunni minni *bros*.....Það er því miður búið að vera barasta lítið að gera í vinunni í dag þannig að dagurinn er búin að líða alveg ógó hægt....hmmm...ekki að fíla það!!
Datt inná einhverja ógó leiðinlega síðu áðan þar sem að maður getur skreytt eitthvað blessað jólatré svona sér til dundurs......alveg hryllilega leiðinleg afþreying alveg hihihihihi.....endilega prufið það *bros*......
Ég og mamsan mín ætlum að vera alveg svakalega menningalegar í kvöld og skella okkur á upplestur í Hlaðvarpanum / Kaffileikhúsinu í kvöld, hlakka ekkert smá til. Fórum á 4 svona kvöld í fyrra og þetta er alveg rosalega gaman, ef að maður hefur gaman af góðum bókum þ.e.a.s........
Hausinn á mér er alveg að snúast í marga hringi ........ er mikið búin að vera að spá í jólagjöfum
fyrir þetta árið og mér er alls ekki að detta neitt svona nýtt og siðugt í hug............endilega ef að þið vitið um einhverja silld......látið mig þá vita - PLÍS *bros*
Litla frænda mínum langar alveg ógeðslega mikið í Heimsmetabók Guinness.........ég er svona la la á því......mér finnst þetta vera svo skemmt fólk allt saman í þessari bók......ég meina hverjum dettur allt í einu í hug að fara að safna "lengstu tánöglum" í heimi.....hvað er það ??.......stærstu eyrum, feitasta fólkið.............halda lengst í sér andanum........etc........er ekki eitthvað að ??? Hmmmm......
Jæja ég ætla að hætta að þrugla svona mikið........reyna að snúa heilanum á mér á rétt plan - vinnuplan..........
Við skjáumst bara sem fyrst...
*klípílæri*

25 nóvember 2002

hellu hellú litla fólk......
Jæja gleðilegan mánudag.......það er að koma hádegi en ég er engan veginn að vakna inní daginn......sit hérna í vinunni og get ekki annað en hugsað um rúmið mitt.....hmmm

24 nóvember 2002

Hlú hlú litlu "hínin" mín............vííí.....ég rakst á þetta fljúgandi svín inná einhverri síðu og hef bara ekki hlegið jafn mikið í ég veit ekki hvað langann tíma, vona að það vekji nú jafn mikla kátínu hjá einhverjum öðrum.......*bros*........ég er búin að komast að því að ef að maður er eitthvað svona smá down eða eitthvað og þarf að fara og horfa á undarlegt fólk til að komast í betra skap þá er "Ari í Ögri" þí pleis tú dú it............hihihiihi.......ég sat þar aðeins í dag með Hrönslunni minni, vorum bara í makindum okkar að spjalla um daginn og veginn þegar að þessi blessaði maður fer að spjalla við okkur og afgreiðslufólkið á staðnum.......hann fór að deila með okkur ævisögunni og sínum svona getgátum um lífið.......hann var í svona gallabuxum síðan '85 (4 númerum of litlum), stuttum brúnum leðurjakka - mittisjakka, með svona Nike skólatösku á bakinu strekta alveg uppí heila þannig að hann gat varla hreyft hendurnar - þegar að hann var með hana á bakinu þ.e.a.s..........síðan lagði hann svona töskuna létt á gólfið alveg einsog að hann væri með brothætta ömmu sína í henni og dró upp svona möppu einhverja......við svona "jájá".....hlustuðum temmilega mikið á hann........well hann fór að sína okkur í möpunni alskonar myndir af einhverjum bílum sem að hann sagðist hafa teiknað og hannað.......hann t.d. var með það alveg á hreinu að hann hefði nú HANNAÐ vörubíla.....hann s.s. fann upp vörubílinn......og þegar að hann sá að við vorum ekki alveg að trúa honum beint þá fór hann að ota í okkur myndum af perlunni og sagði að hann hefði nú líka hannað hana og Smáralindina það mætti nú ekki gleyma því masterpís sem að hann hannaði og teiknaði en stjórnvöldin stálu frá honum teikningunum......hihihihihi....við vorum í einhverju kasti yfir greyið manninum sem að sat og sötraði bjór því að hann var að halda uppá það að hann hefði nú verið að koma út af Vogi fyrr um daginn......síðan vildi hann fara af stað með auglýsingaherferð á því hvað það væri sniðugt að sprauta B vítamíni í rassinn því að það væri svo fljótvirkt og sniðugt..........við svona "HALLÓ" sniðugt gegn hverju.......hmmm........æi þessi maður var bara yndi og ekkert smá fyndinn....hann hljóp allt í einu út, sagðist hafa séð 1 stk. grátt hár þegar að hann var á baðinu, þyrfti að hlaupa í lyfju og kaupa sér lit því að um leið og eitt hár væri orðið hvítt þyrfti maður að lita öll hin eins......hihihhi.......það er örugglega ekkert hægt að skilja neitt í neinu sem að ég er búin að vera að skrifa hérna.........en vá......ég vona að þið hittið hann nú öll á lífsleiðinni........hann er með frábærar hugmyndir *glott*........
Well helgin mín var bara fín, letihelgi.......tannlausi álfurinn minn kom heim á föstudaginn, bara gott og gaman að fá hann heim........veður heima í viku.......erum að fara að barnastússast eitthvað á meðann hann er hér, nýta tímann - kaupa jólagjafir og eitthvað.......hmmmm......jæja ég ætla að hætta þessu tuði..........
Ble ble.........


Snilldar snilldar svín..........

20 nóvember 2002

Hlú hlú........jæja nú er bloggið mitt eitthvað bilað....tipical alveg.........ekki það að ég hafi svosem eitthvað að segja merkilegt í dag.....dagurinn fór bara í alskonar bankastúss *ojjjjj*.......og reddingar....í þessu líka ógó góða veðri mar......ég sá varla útum eldhúsgluggan hjá mér fyrir bara rigningu, slyddu og ógeði og svo fauk maður á milli staða....*hrollur*......er semsagt veturinn kominn ?? Frekar vil ég bara svona léttan snjó heldur en þetta ógeð.........ég þurfti að fara í bankann út á Nesi hjá Nýkaup og þar, lagði í stæði og er svona litið út um spegilinn og sé gamla konu "eldgamla" fjúka um allt stæðið með kerru......hún var EKKERT að ráða við þetta litla konan, hún hefur verið sko 1.20 á hæð og svona álíka létt og tannbursti.......og það var fullt fullt fullt af fólki sem að hljóp framhjá henni greyinu og hún alveg að tapa sér......auðvitað hljóp ég út úr bílnum og hjálpaði gömlu konunni......ég meira að segja keyrði henni heim *klapp*...........góðverk dagsins í dag !!!! En vá hvað ég varð pirruð að sjá allt þetta fólk hlaupa framhjá henni, horfa á hana bagsa þarna og gera ekki neitt..........hmmmmmmmm
well við stelpurnar hérna í arbejdet vorum að pannta okkur pizzu, ætli það sé ekki best að fara og gúffa henni í sig............*slurk*
kveð að sinni.......
Djös.....þetta er allt eikkað bilað mar.....hmmmm

19 nóvember 2002

Góðan daginn gott fólk..........
hmmm....nú eru að hlaðast upp spurningar og pælingar sambandi við jólin, hvað á maður að gefa og hverjum á maður að gefa.....æi þetta sem að poppar uppí hausinn á manni hvert árið á fætur öðru........alltaf ætla ég að stytta gjafalistann en virðist aldrei takast það....hmmm....og blessuðu jólakortin...hmmm...ég er alltaf alveg ógó dugleg að fara og kaupa karton og alskonar dót til að föndra jólakort, svo byrjar maður rosalega samviskusamur, byrjar auðvitað á þeim sem að sendi manni árið áður og svona en ALDREI tekst mér að fara með þetta í póst þó svo að þau liggji tilbúin á borðinu heima í langann tíma.... hihihih....hvað er málið.....þetta er alltaf svona með póst/bréf........maður getur verið ógó duglegur að skrifa bréf og kort og svona en svo loksins þegar að það kemur að því að fara með þetta.....ALLA LEIÐ út á pósthús þá bara fer allt í keng og kúlu...........hmmmm......nei nei nei....ekki þetta árið.....nú ætla ég sko að vera ÓGÓ dugleg, ég ætla ekki að föndra þau heldur bara kaupa einhver falleg kort og þá kanski kemst ég með þetta í póstinn....hvur veit *bros*.....

18 nóvember 2002

Hvað og hver er ÞETTA....jólagjöfin í ár......
Eitthvað finnst mér þessi ekki beint traustvekjandi......hmmmm
Hellú hellú litla fólk og gleðilegan mánudag!!!
Það hefur svosem ekkert merkilegt á daga mína drifið......helgin var bara róleg að vanda......fór með fjöllunni í bíó í gær - fór að sjá "Hafið"......mæli með henni, svakalega flott mynd, vel tekin, leikin, leikstýrð....etc........*klappklapp*......Veit ekki alveg hvernig hún er samt fyrir erlendan markað, mér fannst hún eitthvað svona tipical íslensk mynd fyrir íslendinga....æi þið vitið þessi íslenski húmor og allt það.......æi veit ekki......
Mér finns algjör snilld þessar hryllilegu auglýsingar fyrir Herra Ísland sem eru alltaf verið að sýna á Skjá einum.....hvað er málið með þessa keppendur....ég vil ekkert vera leiðinleg eða neitt svoleiðis en mér finnst einginn af þeim neitt svona bera af.....þetta eru allt massa kroppar en samt eru þeir allir eitthvað svona "mis".......kanski bara ekki mínar típur *bros*........
Thíhíhíhí.....datt inná einhverja færeyska síðu gegnum Batman......vá prufið að lesa eitthvað að á þessari síðu....kemur manni bara í gott skap......einsog t.d. Útferðin til Tippafoss.........það er alveg yndislegt hvað þetta tungumál er alveg ótrúlega líkt íslensku en á sama tíma algjör andstæða......hihihihi
Svo sá ég það líka einhverstaðar að hann Sigurjón Tvíhöfði er farinn að blogga..........bjóst nú við meiru frá honum þessari elsku.....hann er kanski orðinn svolítið þreyttur.....hmmmm
Ég er á svona einhverju ÞREYTTU tímabili núna, vill voða lítið annað gera en að sofa.....hmmm....það er líka svo gott mar......allar mömmurnar hérna í vinunni segja að þetta verði svona síðustu mánuðina sem eftir eru......mér finnst það nú svona einum of.....
Kallinn minn var að lenda í einhverskonar vinnuslysi þessi elska og braut allar framtennurnar, er því að koma í land núna á miðvikudaginn, tannlaus og sætur....hihihh....var að tala við hann í símann, hann sárþjáður þessi elska og ég litla ljót gerði ekkert annað en að láta hann segja eitthvað með mörgun SSSSSSSS-um *glott* og sjá hann fyrir mér tannlausann.......hihhihih.....ekki beinnt huggandi kærasta!!!! Verð bara góða konan þegar að hann kemur í land, elda handa honum súpu og svona *fliss*.....eitthvað sem hægt er að borða með röri.....
Ohh mig langaði svo á boxið í höllinni, hef heyrt að það hafi bara verið gaman þarna og svakalega vel heppnað allt saman.......djö...mar fer bara næst!!
Wellí ég ætla að fara að halda áfram að vinna og skoða ruglaðar heimasíður og svona.....
Bið ykkur bara vel að lifa og vona að helgin ykkar hafi nú verið algjört brill !!!

12 nóvember 2002

Seiðandi súputengingar á sunnudegi......
Bla...nú er þreytan alveg að fara með mig mar.......held að ég hafi vaknað svona 3-4 sinnum í nótt við það að vera með sinadrátt í löppinni og dúndra svona allskemmtilega í vegginn heima hjá mér.....hihhihhi...fólkið við hliðiná heldur örugglega að það hafi eitthvað svakalegt gengið á í svefnherberginu mínu í alla nótt......gott ef að þau halda það bara........hihhihih.......ég er líka með svo skemmtilegan streng svona niðreftir löppinni, geng svona um einsog haltur hamstur í leit að maka...........víííííí........
Hann "Le-bla" var að benda mér á að það væri tónlist á síðunni minni, wellí ´skan þá veistu meira en ég ..... hef ekki enn heyrt lagið á bakvið síðuna mína, vona bara að það sé ekki of leiðinlegt og pirrandi (má samt vera svona temmilega pirrandi hihihih) og hef ekki hugmynd um hvernig ég setti það inn *bros*...........

11 nóvember 2002

Hihihihi........bara snilld, rakst á þetta á einhverri heimasíðu gegnum leit.......

11 aðferðir til að losna við konuna

Geðveila
1. Taktu uppá að strauja allt mögulegt, td sokka, dagblöð, servíettur osfr. Talaðu sífellt um hvað það fari í taugarnar á þér hvað rúmfötin séu alltaf krumpuð á morgnanna, sérstaklega hennar megin. Taktu jafnvel uppá því að vakna sérstaklega um miðja nótt til að skipta um rúmföt, enn betra er að strauja þau sem fyrir eru.
2. Byrjaðu að safna klósettburstum. Hafðu þá á áberandi stað í íbúðinni og raðaðu þeim daglega upp eftir því hverjir eru í uppáhaldi þann og þann daginn. Sýndu gestum þá stoltur og kynntu með nafni.
3. Talaðu um að þér finnist ekkert jafnvægi í heiminum og allt stefna til hægri. Minnstu síðan alltaf á það ef þú sérð einhvern taka hægri beygju eða nota hægri hönd osfr. þínu máli til stuðnings.

Pirrandi
4. Horfðu á allar íþróttir sem þú kemst yfir og vertu miður þín ef það endar ekki með jafntefli. Ef annað liðið vinnur talaðu þá um hvað tapliðinu hljóti að líða illa og segðust þurfa að fá smá tíma einn til að jafna þig. Sá tími má gjarnan vera nokkrir dagar.
5. Hafðu alltaf með þér ælupoka, svona just in case. Kúgastu í pokann við öll möguleg tækifæri.
6. Boraðu í nefið án afláts og segðu henni að “sá stóri” fari að koma. Þetta sé bara tímaspursmál.

Leiðinlegur
7. Segðu alltaf “nei”, en sýndu lygaramerkið á puttunum ef svarið á að vera “já”. Td ef hún spyr hvort þú viljir að hún fari (sem ætti að vera orðið nokkuð ljóst á þessu stigi).
8. Talaðu um fjölskyldu hennar sem “Blóðsugurnar” og taktu ávallt hvítlauk og viðarkross með þér þegar þið farið í heimsókn til þeirra.
9. Reyndu að fá hana til að skrifa undir lögbundinn samning þess efnis að hún sé “þín eign”. Segðu að þetta sé bara formsatriði og sé venja þar sem þú ólst upp.
10.Hættu að tala. Algjör þögn gerir kraftaverk og er eitt albeittasta vopnið í andlegum hernaði. Ef hún talar við þig þá skaltu bregðast reiður við og öskra “NÚ ÞARF ÉG AÐ TELJA ALLT UPPÁ NÝTT!!!” og halda áfram að horfa á sjónvarpið.

Örþrifaráð
11. Segðu henni að þú ætlir að fara í bæinn og kaupa e-ð til að hressa uppá ástarlífið ykkar og komdu heim með páfagauk. (Hún bíður sennilega ekki eftir útskýringum)



11 aðferðir til að losna við kallinn

Trúarleiðin
1. Farðu með Faðir vorið í síbylju á meðan þið elskist. Eftir ástaratlotin gefurðu honum 1 til 10 Maríubænir miðað við frammistöðu.
2. Hringdu í mormóna eða/og votta jehóva og bjóddu þeim í heimsókn á laugardögum þegar liðið hans er að spila í beinni.
3. Efastu um tilvist alls sem ekki er sérstaklega talað um í Biblíunni. Hafðu hana alltaf meðferðis og flettu upp í henni til að athuga hvað sé ”í lagi” og hvað sé ”verk satans”.

Afbrýðisemi
4. Skrifaðu lista með vel yfir hundrað karlmannsnöfnum og skráðu 1 til 10 Maríubænir fyrir aftan hvert þeirra. Hafðu jafnvel dagsetningar með en passaðu þá að það séu dagsetningar þar sem hann var fjarverandi. Skildu listann ”óvart” eftir á eldhúsborðinu.
5. Gerðu lítið úr meti Annabell Chong. Kallaðu hana aldrei annað en ”nunnuna”.
6. Talaðu um alla fyrrverandi elskhuga sem ”Folann”, ”Herkúles”, ”Maskínuna” osfr.

Subba
7. Hættu að þvo þér. Segðu honum að líkaminn hreinsi sig sjálfur sé honum gefinn tími til þess. Það taki að vísu fjórar til sex vikur, en sé vel þess virði.
8.Hafðu sérstaka fötu á klósettinu fyrir notaðan klósettpappír.
9. Hræktu á bakið á honum við hvert gefið tækifæri. Haltu fram að þetta boði gæfu.

Hræðsla
10. Segðu honum að nýi 18 mánaða hormónakúrinn þinn eigi eftir að koma skemmtilega á óvart. Sýndu skyndilegan áhuga á fótbolta og bardagaíþróttum og klóraðu þér í klofinu við hvert tækifæri. Hlæðu hátt ef einhver leysir vind nálægt þér og reyndu að svara í sömu mynt.

Örþrifaráð
11. Menn eru alveg óútreiknanlegir og allar ofantaldar aðferðir geta virkað þveröfugt á hann. En ef hann er ekki farinn á þessu stigi þá er hann greinilega það heftur andlega að þú ættir að geta látið svipta hann sjálfræðinu og lagðan inn. Ef það tekst reyndu þá að fá hann lagðan inn á dýraspítala og láta svæfa hann. Þetta er auðvitað langsótt en hérna erum við líka að tala um algjöra örvæntingu.

Hlú hlú attur gott fólk...............var að koma frá ljósmóðurinni (mæðraskoðun)........þetta er algjör gleðipilla að fara í svona......ég svíf alltaf út á bleiku skýi þegar að þetta er búið.....
Það lítur bara allt mjög vel út.....kúlubúinn bara orðin um 750 gr og um 30 cm .... ekkert smá lítið, en á sama tíma svo stórt .......hjartslátturinn normal, hljómar bara einsog eitthvað lag í mínum eyrum......æi þetta er bara allt svo yndislegt...
Langaði bara að koma þessu frá mér...
*hamingjuveif*
*lengiaðvaknabros*
Góðan daginn litlu amöburnar mínar........jæja ég vona að helgin hafi nú verið góð, allir slöppuðu af, fóru á Hrafnistu að spila við ömmu eða afa, jólakortin föndruð, síðasta jólagjöfin keypt, tekinn rúnturinn í kolaportinu og svo að sjálfsögðu farið og fenginn sér smá ís í Álfheimunum...........var ég nokkuð langt frá því eða???
Þetta jólastress er ekkert smá að færast yfir landann.......hitti eina hérna um daginn sem að var alveg í öngum sínum yfir því að eiga heilar 3 gjafir eftir og ekki nægan tíma til stefnu til að velja og svona.........shit....hvað er málið.....það eru alveg 43 dagar til stefnu.....alveg óþarfi að panikka held ég..........
Annars.......helgin mín var bara æðisleg.........ég var algjör sófaklessa ALLA helgina og sé ekki eftir því........það er svo fyndið, maður fær stundum svona samviskubit yfir því að vera að liggja í sófanum, finnst maður eigi að vera að gera eitthvað anna....eitthvað af viti.......
Wellí þegar að ég kom heim úr vinunni á föstudaginn þreytt og pirruð beið mín bara hinn dýrindis kínverski matur og kertaljós ..... ekkert smá notó (kallinn greinilega komin heim *bros*).....að sjálfsögðu var borðað yfir sig ...... *namm*.....laugardagurinn ..... hmmm....hann fór í ennþá meiri sjónvarpsgláp og át......bara notarlegt líka hihihhih....það var varla að maður nennti að fara á klósettið letin var svo mikil........síðan á sunnudaginn var maður líka endurnærður og frískur......kallinn fór á sjóinn aftur *grenj*....og ég hélt til vinnu......bara leiðinlegt.......hefði viljað að á eftir laugardegi kæmi aftur föstudagur (föstudagskveld)...hihihihi...djö væri vikan fín ....... Fór svo til múttunnar minnar eftir að ég var búin að vinna og skúra......maður á alltaf að fara til múttunar sinnar þegar að kallinn fer á sjóinn, þá fær maður svona "ég vorkenni þér meðferð".......gott að borða og stjan hiihihihhi.....mömmur eru alveg ómissandi þegar að maður er eitthvað svona down eða lasin eða eitthvað........algjörir snillar !!!!! Well múttan mín er að fara til útlanda á fimmtudaginn í heila 10 daga, shit hvað maður verður vængbrotin þá mar.................jæja nú ætla ég að hætta þessu blessaða væli.........ég er í svo góðu skapi í dag að það er alveg að fara að springa á mér lilliputtinn............hihih....



Ef að þetta er ekki ofvirkt jólatré hérna fyrir ofan þá veit ég ekki hvað..............thíhíhíhí
Alltaf verður maður að taka þessi test ef að maður rekst á þau mar.........hmmmmm

My%20ideal%20mate%20is%20Aragorn!%20
Who is your Ideal Lord of the Rings (male) Mate?

brought to you by Quizilla

10 nóvember 2002



Stundum líður manni bara svona..........

07 nóvember 2002

Hún Hrönsla mín kom í heimsókn til mín í vinnuna......þannig að nú hef ég ekki tíma til að röfla meir hér.......ætla að hætta þessu hangsi og fara að vinna einsog maður........fle
Sjúmst.....ble
Hellú hellú litlu mín!!
Jæja nú hefur maður ekki alveg staðið sig í stykkinu einsog maður ætlaði að gera (vera duglegur að skrifa og svona), en ég læt allaveganna vita af mér annarslagið *bros*
Það er nú barast ekkert nýtt að frétta af mér og kúlubúanum nema kanski að hann hefur tekið ástfóstri við einhverja eina taug og ákveðið að sparka bara í hana svo að maður engist svona um einsog einhver hálviti allan daginn.......bara gaman.
*jeij*....var að tala við kallinn minn og hann er barasta að koma heim í nótt og verður fram á sunnudag........bara gleði á bænum út af því og svona, hef ekki séð hann í svona rúmar 2-3 vikur......fráhvarfseinkennin orðin svona nett sýnileg örugglega *bros*...
Ég sá alveg snilldarmynd (að mínu mati allaveganna) um daginn.."The road to Perdition" með Tom Hanks, Paul Newman og Jude Law.....já ég mæli eindregið með henni.....Paul Newman fer alveg á kostum, hann er náttúrulega bara snilli þessi leikari......og svo er einhver lítill strákur sem að leikur líka eitt af aðalhlutverkunum sem að er svona náttúrutalent bara......ég held að það hafi líka hjálpað mikið að ég vissi ekkert á hvernig mynd ég var að fara þegar að ég fór, þá hefur maður ENGAR væntingar vot só ever sko!!! Jæja þarf að skottast aðeins...
Bara snilld..........*glottútaðeyrum*

Þetta er auðvitað titillag plötunnar "My Icelandic Man", með Leoncie.

My Icelandic man, A real gentleman.
You light up my fire.
What makes you tick, is it your big Icelandic stick?
I'm filled with desire.
Hey Icelandic eyes, with your great magnetic smile.
Take off your clothes.
Come close to me baby, for I am your Lady,
and you don't need those.
Do it, do it, do it, do it all night long.
Grab me, take me, fill me Darling, please do not sweat.
I don't need no Lubrication, I am wet.
Oh yeah, I feel it coming now.
I feel you in me oh.
I feel it coming, it's exploding.
My Icelandic lover, from a land filled up with Lava.
You're volcanic, like the country.
Your muscles make me shiver, I'm burning with desire.

04 nóvember 2002

Gleðilegan sunnudag litlu blautu gleðipinnarnir mínir!!
Vona að helgin hafi verið alveg lovlí hjá ykkur öllum........sit núna heima með flensu dauðans og horfi á "popppunkt", hvað er málið hjá þeim á Skjá1 að endursýna allt í það minnsta 5 sinnum eða eitthvað........arg......manni finnst maður alltaf vera að horfa á sama þáttinn aftur og aftur......kanski er það bara svona hint fyrir mig að horfa minna á sjóbbann eða eitthvað *bros*, nei held ekki.......
Well ef að einhverjum vantar góða bók að lesa, þá mæli ég með Hjarta, tung og bláir fuglar....byrjaði að lesa hana á föstudaginn og er alveg að fíla hana, líka af því að ég las fyrri bókina......ég er reyndar vön að geyma það að lesa *jólabækurnar* þar til um jólin en ég stóðst bara ekki mátið þar sem að hún lá svona girnileg á náttborðinu mínu...bara varð.......ég er líka í eitthverju svona lestraræði þessa dagana, held að ég sé búin að lesa allar bækurnar hérna heima hjá mér svona skrilljón sinnum og er farin að færa mig í bókahillur vina minna og ættingja......svo að ef að þið getið mælt með einhverri bók fyrir mig að lesa ENDILEGA dú só .........
*hóst,hóst*........mikið ansk...er ég komin með mikið ógeð af þessari flensu sem að er búin að vera að grassera í mér í svona rúma viku, maður er svona alltílæ fínn á daginn en svo þegar að maður gerir tilraun til að leggjast á koddann á kvöldin þá fer allt af stað og maður hóstar bara og hóstar og þar sem að þolinmæði mín og hormónar eru eitthvað á viðkvæmu stigi þessa "mánuðina" hihih þá gefst ég upp og sit frekar andvaka en að liggja og hósta, ég hlít að vera komin með massa magavöðva undir bumbunni af öllu þessu hósti, verst að þvottabrettið er falið hihhiihiihi.....ég veit af því allaveganna *glott*
....Vá hann Felix í "popppunkti" er svolítið seps.......hann talar svona til keppenda einsog að þeir séu eitthvað svona misþroska eða eitthvað......
Wellí ég ætla að fara að segja þetta gott í bili.......ætla að fara að leggjast uppí rúm og lesa aftaná morgunkornskassa eða eitthvað hihih....vona að þið sofið rótt og dreymi nú eitthvað skemmtó ......

29 október 2002

Hihihih, ég held að "veðurkonan" mín sé nú barasta að fríka út núna, það skín bara hjá henni sólin og hún bara léttklædd.........ég er ekki alveg viss í hvaða Reykjavíkurborg hún er stödd en ég vildi alveg vera þar núna..........komast burt úr þessu ógeðslega slabbi og slyddu......*hrollur´*.......ég er búin að hringja á ég veit ekki hvað mörg svona dekkjaverkstæði og spjalla við heilan her af almennilegum köllum, um nagla og loftbólur........það er minnst 1 - 1 1/2 tíma bið ....... arg.....nú reynir á litlu þolinmóðu konuna mar.....hmmmm.....annars var ég að spá í að fá mér bara svona vængjadót einsog fuglinn hér að neða og ferðast svona um.......vá hvað lífið væri nú auðveldara, pælið í því.....engin framrúðutrygging og ekki neitt hihiihhi.......*glott*
Pirringur dagsins í dag fellst í öllum þessum jólaskrauts/jólaauglýsingum sem að eru að fara í loftið þessa dagana......persónulega finnst mér þetta alltof alltof alltof snemmt mar.......jólafílingurinn verður alveg búinn þegar að loksins kemur að þessu.........ég á litla ógó sæta frænku sem að byrjar um leið og hún sér fyrsta jólaskrautið, heyrir fyrsta jólalagið eða sér fyrstu auglýsinguna sem að minnst er á jólin í .......... hún spyr alltaf " eru jólin á morgun mamma".........pælið í því, mamma hennar semsagt heyrði þetta í fyrsta skipti í gær og á eftir að heyra þessa spurningu í 2 mánuði.........*garg*.........hihhihhihih......en maður má víst ekki pirra sig yfir jólunum........
"hugsið um öll börnin sem að fá ekki að gleðjast yfir jólunum"......................svona er alltaf hægt að segja!! *bros*
.......ég heyrði niðurstöður úr einhverri mest heimskulegustu könnun sem gerð hefur verið hér á landi í útvarpinu (í gær minnir mig)................málið var að það eru víst feitari konur á Akureyri heldur en í Hafnarfirði, en konurnar í Kópavogi eru með stærri fætur (nota að jafnaði stærri skóstærðir) en konur á vesturlandi og svo eru konurnar í austurbænum víst sparsamari en konurnar í vesturbænum (í Rvík)..............thíhíhíhí........ "hvað með það".........hmmmmmm..........þessar upplýsingar koma sér ekkert smá vel.........hihihi......
Wellllllí ætla að hætta að góla svona eitthvað út í loftið.......er að spá í að fara að rífa í eyrun á Steinunni samstarfskonu minni því að hún er orðin græn í framan af þreytu og ég lofaði að halda henni vakandi.............hvað er betra en að pína stúlkuna aðeins hihih.
chau amigitos!!!

28 október 2002

Ef að þið eruð í of góðu skapi og langar aðeins að tjúna ykkur niður.................maður verður geðveikur af þessu.........prufið að klikka hér ....
aaaaaarrrrrrrggggggggg..........nenni ekki snjónum í dag....nú þarf maður að fara að fjárfesta í húfu, trefli og vetlingum og auðvitað að skella vetrardekkjunum undir "beygluna"....er ekki að nenna né geta þetta akkúrat núna!!!!
Hvar ódýrt og gott svona dekkjaskiptiverkstæði ???.........fle
Nóg að gera í vinunni og heilsan ekki uppá sitt besta *hnerr*..........held að mér hafi loksins tekist að krækja mér þessa blessuðu pest sem að hefur verið að ganga um landið....hmmm....
hef svosem ekkert að segja litlu börnin mín.......bið bara að heilsa ykkur og vona að slabbið sem að er að leggjast hérna yfir Reykjavíkurborg gleðji einhver lítil Pollýönuhjörtu!!
*bros*
Hihihi datt inná alveg ógó skemmtó síðu svona í morgunsárið.....þar sem er verið að segja frá alskonar mismælum hjá fólki þegar að það er að syngja með lögum, kíkkið á það !!!

27 október 2002

Já já......ég skammast mín fyrir léleg skrif.......það hefur nú bara ekkert svo mikið né merkilegt á daga mína drifið.......
Nú er farið að dimma svo déskoti snemma mar.......ohhhh.....ískalt úti og frostið alveg nagar í kinnarnar á manni *slurk*.....
Ég hitti Höffu, Gústu í gær, bara gaman.......mikil þynka í gangi þar á bæ enda bara 24 tíma stopp í bænum eða eitthvað, og auðvitað verður þetta fólk (þær) ALLTAF að kíkja á Gaukinn þegar að það rennur hérna við í bænum....hvað er það.....endalaust reunion hjá sveitaliðinu !?!?!
Wellí það var allaveganna ógó gaman að hitta þau, hef ekki séð þau svo ógeðslega lengi, enginn hefur breyst neitt mikið.............Fyrir utan þessa heimsókn frá stúlkunum var helgin mín bara í við róleg, var sofnuð alveg fyrir miðnætti báða dagana, orðin alveg "gamlakonan.is"........ og vöknuð fyrir hádegi og farin að bardúsa áður en að fólkið var farið að rumska í Reykjavíkurborg...........ég tölti niðrí bæ áðan (eldsnemma) og dísus ég varð alveg full af því.......það var svona einsog að alkahóllyktin hefði bara frosnað við húsin eða eitthvað, geðveikt skrítið.....æi eitthvað svona hálfsubbó eitthvað um að litast......æi og svona litlir túristar að klífa yfir bjórflöskur og ælur hér og þar á Laugarveginum....*hrollur*......... víííí........gamla konan alveg að fríka út í mér.........held að ég sé bara tvískiptur persónuleiki............það er annarsvega "Ég" og svo er það gamla konan hún "Þórlaug"......*bros*.....
Jæja nú held ég að þær Steinunn litla ofurhamstur og Drea dreki séu alveg að tapa sér úr karlmannsleysi...........þær eru að fara að skrá sig inná éggefstupp.is og farnar að skoða og panta hjálpartæki ástarlífsins hérna í vinunni......hmmm....þessar elskur!!
Jæja ég þarf víst að hætta að bulla hér í bili......þarf að fara að ganga frá mínum málum hér í vinunni........vildi bara láta vita að ég er enn á lífi........fitna bara og fitna *bros*
*klípíkinn*

21 október 2002

Hlú hlú litla fólk......hmmm gleðilegan mánudag *geisp*......... mikil leti og þreyta í gangi í dag....og barasta alla helgina......æi svona fílingur að manni langar bara að liggja og gera alls ekki neitt!! Var bara í rólegheitunum á föstudaginn eftir vinnu, elduðum okkur góðan mat - ég, mamsa og kallinn.......láum svo bara og horfðum á sjóbbann.....síðan var vaknað eldsnemma á laugardeginum, keyrt til Grindavíkur og bóndinn fór á sjóinn.....*sniff*......fór svo til múttu og lét hana stjana við mig þar sem maður verður alltaf svolítið lítill í sér þegar að kallinn fer á sjóinn......sé hann ekkert næstu 3 vikurnar *hmmmm*........síðan fórum við mútta bara til ömmu, hún gaf okkur svona ömmuköku og ömmukvöldmat *namm*......horfði einhver á "Spaugstofuna" á laugardaginn.......hihihiih.....mér fannst þetta ekkert smá góður þáttur mar......iihhhihih.....sérstaklega "Sunnudagsleikhúsið".........og allt grínið sem að var gert á Skotunum......wellí eftir góðan dag með ömsu og mömsu fór ég í kvöldheimsókn til Hrönslunnar minnar, við spiluðum, horfðum aðeins á sjóbbann....drukkum kaffi og spjölluðum.......var svo barasta komin heim í fyrri kanntinum, þreytt og lumbruleg.....enginn djammpúki í mér þetta kvöldið, held barasta að hann (djammpúkinn) sé búinn að fatta loksins að ég sé ekkert á leiðinni á djammið á næstunni......hihihhi....
Hmmm á sunnuadaginn lá ég barasta og las heima hjá múttunni minni þar sem að hún var að byrja að vinna hjá PP Forlaginu og var að fá heim með sér GOMMU af góðum bókum....lét svo pabba og co. bjóða mér í mat....ógó góðan kjulla......fór svo að skúra um kvöldið og svo barasta heim að lesa........hmmmm....þvílík stuðhelgi hjá mér hihiiihih.....
Svo vaknaði mín bara einsog klukka í morgun 8:45........þetta er eitthvað nýtt hjá mér....alla daga vakna ég klukkan 8:45 og ekki mínútunni seinna.....hvað er það.....fór í alveg margra klukkutíma langa sturtu.....fékk mér góðan morgunmat og var svo duglega stelpan og fór í göngutúr.......hihih....labbaði svo niður laugarveginn og verslaði mér ekkert smá mikið ....... í huganum.......settist svo inná Kaffihús, hitti Dreu Dreka, drukkum MIKIÐ kaffi og spjölluðum um heima og geima.......nú sitjum við hérna báðar í vinunni og erum að spá í að skella okkur í "Bingó í Vinabæ" í vikunni........það held ég að sé ógó mikið stuð mar hihihihihi.....
Wellí nú ætla ég að fara að vinna einhverja mynd.....
kveð að sinni......

18 október 2002

Var að lesa svo ansi skemmtilegan pistil inná JPV síðunni........fullt af snilldar snilldar pistlum sem að er ógó gaman að lesa!!!!!
Wellí það er svo mikið að gera að ég get ekki skrifað mikið núna/í dag.......
ble ble
Ég var að lesa hérna inná DV síðunni litla frétt um svona bensínstríð á Hornafirði.......akkuru getur ekki verið svona í Borg Óttans.......arg........
Góðan daginn gott fólk.......gleðilegan föstudag......
Eitt próf svona í morgunsárið....

not bisexual



Nope. Definitely not bisexual. Thank you for trying ;)


Although you only like to eat one kind of meat,

that doesn't mean you are any less of a sexual gourmand.

You just choose only the finest of dicks/breasts

(whichever strikes your particular gender's fancy)

and enjoy them with the style and panache that ideally suits you.



Are *You* Bisexual? Click Here to Find Out!

More Great Quizzes from Quiz Diva

17 október 2002

Jæja nú reyndi á mig mar.........ég var að bóka flug til Köben fyrir ömmu og mömmu áðan og ég held að þetta sé eitt það leiðinlegasta sem að ég hef gert mar......maður þarf víst að læra að samgleðjast og leggja öfundsýkina alveg á hilluna mar *bros*.........jú jú mar er abbó á góðan hátt......en alveg sama mar.....djö langaði mig ógó mikið til útlanda þegar að ég var að þessu.....mér væri sama þo það væri ekki nema bara til Færeyja eða eitthvað......ég hef ekkert farið út síðan 2000......ekkert smá langt síðan....ég jafna mig *glott*....
*æl*
Jæja ég held að ég hafi fengið alveg VERSTA hádegismat sem að sögur fara af......þetta voru svona grænar baunir inní tortilla pönnukökum með BRÚNNI (ömmusósu) sósu......"hvað er það".......*puff*....
Wellí einsog ég sagði ykkur í gær þá var svona familídinner í gær og hann var algjört æði, fengum ógó góðan fisk, borðuðum ekki fyrr en ógó seint eða um 10 - og vá hvað ég og kúlubúinn vorum orðin svöng mar *bros*.....æi bara lovlí kvöld með hele familien mar.........
OJJJJJJ, pælið í því, í gær fékk ég mér smá göngu hér um hlíðarna, tók mér barasta smá pásu eftir vinnu og fór að labba, var orðin eitthvað svona skrítin og svona......og SHIT hvað haldiði að hafi hlaupið/trítlað framhjá mér.........*HROLLUR*.......eitthvað svona rottu/músardýra.....ojjjjjjjjjjj....ég hélt að ég myndi fríka út...hihihi...ég er ekki hrædd við mýs eða svoleiðis en þetta var ekkert smá flikki mar.....þetta var barasta svona einsog Rainbowryksuga með skott.......
Gleðilegan fimmtudag litlu púkarnir mínir........
Víííí....það var ekkert smá gaman á leiknum í gær, þvílíkur stemmari og læti *bros*......."Ísland á EM.......án Atla !!!" var svona slagorð sem að var víða hengt upp í stúkunum, en brjáluð björgunarsveitarbörn og gæslumenn voru ekki lengi að rífa þetta niður, ekkert smá gaman að fylgjast með þessu......þolinmæðin alveg að fara með þá....Atli litli þorði náttúrulega ekki að láta sjá sig fyrr en 1sta mark Íslendinga var komið.......*hrollur*.....það sem að maður þolir lítið þennan mann.....ég held að hann hafi verið eitthvað svona æxli á Hitler í fyrra lífi.........þessi maður kenndi mér leikfimi í barnaskóla......*hrollur*........hihihhih.....ég ætti sennilegast að skella mér EIN í hópmeðferð út af þessu öllu saman......
Wellí ég er að fara í hádegismat.......verði mér að góðu :Þ
Skrifa aftur á ettir......

16 október 2002

Jæja nú er klokksí að verða 17, ég er að fara að koma mér heim úr vinunni , skella mér í fótboltagallann og beinnt á leikinn *bros*..........víííí......
Vona að dagurinn hafi nú verið góður hjá ykkur og að kvöldið verði SNILLD !!!!!!!!!!!!!!!!!!!!
Hola, hola guapitos!!
Jæja það er barasta sólríkur miðvikudagur........lovlí alveg. Dagurinn er samt ekkert að líða eins hratt og ég hefði viljað en það verður víst bara að hafa það. Var að fá gefins miða á leikinn í kvöld, ótrúlega glöð með það - var svolítið farin að sjá eftir 2000 kallinum sem að ég var að fara að borga mig inná hann *bros*. Mér finnst að allir ættu að fara, ég var að heyra það að það væru bara 750 miðar seldir á leikinn í kvöld (Ísland - Litháen)..........hvað varð um stemmarann sem að fylgdi því alltaf að fara á landsliðsleiki....það eru barasta allir hættir að fara mar.......hmmm...Ég veit að þið verðið öll þarna í huganum *bros*.
Ummm...svo erum við með matarboð (með múttunni minni) í kvöld, erum að fara að bjóða bróður mömsu og ömmu í einhvern svona ótrúlega nýstárlegan fiskrétt - ótrúlega góðan.........Erum alltaf með svona "allir að borða saman kvöld" rétt áður en að kallinn fer á sjóinn.....svona kveðjumáltíð eitthvað......heppí heppí
Well þarf að halda áfram að vinna litlu dýrin mín........varð bara að skrifa ykkur línu og lesa bloggin hjá hinum.........
Þetta er orðið svo skrítið, það eru svona vissar heimasíður/blogg sem að maður fer ALLTAF inná alla daga og manni er farið að finnast maður þekkja fólkið, skiljið hvað ég meina. Alveg svona ... jæja hvernig ætli lífið sé þessa dagana hjá henni Guddu?? Hmmm...ætli Trausti hafi bjargað einhverjum fuglum nýlega........hihh....og allt eftir þessu........bara gaman, en skrítið!!
Víííí....kveð að sinni
*klípíeyra*

15 október 2002

HAHAHAHAHAH...........það kom prinsessa hingað á síðasta föstudag og ákvað að ég væri nýja besta vinkona sín.......söng fyrir mig lag og sagðist ætla að gefa mér diskinn sinn og eitthvað..........ó mæ god........."þú er bara graður".......þetta er partur af lagi......æjæjæjæjjj
Það verða allir að kíkja á síðuna hennar......þvílíkt gull sem að þessi kona er *glott*..........bara að kíkja á síðuna hennar fær mann til að brosa (af vorkunn aðalega).......hihihhi
Datt inná einhverja síðu hjá strák sem að heitir víst Elli, nokkrir góðir punktar inná þessari síðu um það sem að honum þykir fyndið *bros*..........
Hlú hlú gott fólk og gleðilegan þriðjudag!!
Jæja, einsog ég sagði í gær þá vona ég að helgin hafi verið góð hjá ykkur öllum.......mikið djammað og daðrað við skota *glott* Maður var nú ekki að heyra nétt allt of góðar sögur af íslensku kvennfólki eftir helgina...........vinkona mín sem að var edrú sat bara í makindum sínum með öðrum stúlkum inná bar á laugardagskveldinu/nóttinni.......hún fékk bara kalt í andlitið að þrátt fyrir fegurðina þá væru íslenskar stelpur/konur versta landkynning sem að til væri......og að það væri aldrei verið að hlægja með þeim heldur af þeim !!!! ....... æjæjæj........wellí mér er svosem sama, ég var ekki að drekka og gera mig að fífli... *hihihiihi*...... samt fer maður alltaf í vörn þegar að maður heyrir svona....maður er nú einu sinni stelpa og verður svona smá sár/pirraður þegar að maður þarf að hlusta á það að öll kvennkynsþjóðin séu hó***............ble nenni ekki að tala um þetta meir *bros* Er í svo góðu skapi í dag að það er bara með ólíkindum mar..........ef að það væri snjór úti þá myndi ég hlaupa út að búa til engla :Þ
En nóg um það, helgin var bara á rólegri nótunum, hitti aðeins stelpurnar - spiluðum og kjöftuðum bara svona einsog vanalega......var svo barasta sofnuð í fyrri kantinum báða dagana......var að vinna fyrir "Þel" á laugardaginn og svo hérna niðrí DV á sunnudaginn......bara svona sigldi í gegnum helgina
Fékk 2 poka af óléttufötum frá frænku minni...loksins einhver föt sem að maður passar í *hihihhh*.......Svo fór ég í skoðun í gær - alltaf jafn gaman og yndisleg sú stund.....maður verður alltaf svona rólegri þegar að maður heyrir hjartsláttinn. Litli kúlubúinn var samt ekkert á því að leyfa okkur að hlusta ... alltaf þegar að ljósmóðirin lagði hlustunartækið á bumbuna þá sparkaði minn maður bara í tækið *hihiih*......var ekkert að fíla það að við værum eitthvað að böglast í honum/henni.
Æi sorry að ég sé alltaf að röfla um kúlubúann minn, það er bara svo lítið annað sem að fer í gegnum litla hausinn minn þessa dagana/vikurnar/stundirnar *bros*......svo var ég líka búin að lofa vinum og ættingjum sem að búa erlendis eða út á landi að skrifa allt svona hérna inn svo að þau gætu nú fylgst með *bros* !! Vill einhver vera svo vænn að minna mig á að kaupa og VINNA í lottó næstu helgi, hann er þrefaldur mar..............ég segist alltaf ætla að kaupa mér miða en svo geri ég það aldrei *biturtbros* Ohh það var einhver íslenskur gæi sem að vann í Víkingalottóinu í síðustu viku, einhverjar 140 milljónir eða eitthvað........vá hvað ég held að það sé ekki holt mar......samt er ég öfundsjúk......finnst þetta samt of mikið einhvernveginn.........
víííí.....ég verð að hætta núna, þarf að halda áfram að vinna.......
knús handa ykkur öllum
*klípítær*

14 október 2002

Var að heyra snillabrandara........thíhíhíhíhí

Two weasels are sitting on a bar stool. One starts to insult the other one. He screams, 'I slept with your mother!'

The bar gets quiet as everyone listens to see what the other weasel will do.

The first again yells, 'I SLEPT WITH YOUR MOTHER!'

The other says: 'Go home dad, you're drunk.'
Hlú hlú gott fólk, breytingarnar ganga svona ágætlega en hægt.............ég var barasta komin með grænar af hinu draslinu, maður verður nú að skipta um bloggútlit einsog bara að skipta um hárgreiðslu....
Ég segi betur frá helginni á eftir, er að fara í "mömsluskoðun" núna.........langaði bara að heilsa uppá ykkur öll.............vona að helgin hafi verið snilld og að vikan byrji vel ... ekkert smá bjartsýn kona mar *bros*
*klípírass*

13 október 2002

Jæja smá bloggútlitsbreytingar í gangi þannig að síðan verður í messi næstu daga...........víííííí

10 október 2002

Getur einhver verið svo væn(n) að benda mér á maninn/konuna sem að fann upp peningana............ég ætla nefnilega að fara og skera af honum/henni..........eyrun.........djö geta þessir litlu ljótu pappírsdjöflar eyðilagt fyrir manni margt mar. Eruði ekki sammála???
Hihihih.....annars er allt bara ágætt að frétta.......kallinn fer út á morgun *ARG*......er að spá í að sækja bara um pláss á þessum blessaða dall og skella mér bara á sjóinn.........vííí...ekkert smá uppáþrengjandi gella mar hihihihi *glott*...
Well er eitthvað pirr núna þannig að ég ætla að fara að sökkva mér í vinnu!!
*veif*
Las alveg geðveikan brandara inná síðunni hennar Guddu. Ég er búin að vera að engjast hérna í vinunni síðan að ég las hann og barasta verð að deila honum með ykkur !!!

Hámark sjálfsöryggisins: Mýfluga sem flýtur á bakinu niður ölfusá með standpínu, öskrandi opnið brúna, OOOPPPNIIÐÐÐ HELVÍTIS BRÚNA...

08 október 2002

britney spears



Your Inner Blonde is Britney Spears




"Whee! I'm a virgin. Look at my butt crack!"


If everyone were as dumb as you, you'd be able to pull that one off.


But, you do get props for being one of the richest women around!



Who's *Your* Inner Dumb Blonde? Click Here to Find Out!

Var að finna gamla dagbók sem að ég hafði skrifað í þegar að ég hef verið svona um 7-8 ára og þvílík snilld segi ég nú bara, hún er full af einhverjum smásögum og drasli...það var ein alveg æði sko...hihihi...hún átti sko að vera 4 kaflar og eitthvað.......ætla að skella inn hérna 1 kafla og sína ykkur hvað maður var nú brenglaður á yngri árum mar (ekki það að maður hafi eitthvað skánað hiiiihiih)

Ormurinn sem að ferðaðist um litlu löndin fjögur........
Það var einu sinni gulur ormur sem að lagði uppí ferð. Hann vaknaði einn daginn, pakkaði niðrí tösku - stillti sér uppí gluggakistu og flaug af stað.
Hann sveif létt yfir Reykjavíkurborg, valdi sér lendingastað (Sundahöfnina), stóran bláan gám merktann Eimskip, kom sér makindalega fyrir inní honum og beið nú bara eftir að ferðalagið myndi hefjast. Fyrr en varði sofnaði Ommi litli........stundirnar liðu.......þegar að hann vaknaði var hann komin langt út á hafsjó - lagður af stað í ferðina löngu. Klukkustundir, dagar og vikur liður áður en að litli ormurinn sá land aftur. Loksins sá hann höfn, þvílik ánægja og gleði sem að barðist um í brjósti litla ormsins. Hann smaug sér útúr gámnum og rölti af stað í bæjarferð á þessum nýja og ókunna stað. Skoðaði fólkið, skóna, stéttirnar og bara allt sem að hann bar augun á. Í þessu landi sem að hann hafi heyrt einhvern kalla England stoppaði hann í nokkra daga áður en að ferðin hélt áfram. Hann rétt náði að hoppa aftur í gáminn áður en þeir lögðu af stað á næsta áfangastað...........

Svo væntanlega á að koma annar kafli hér........hihhhihih.....þvílíkur penni mar.......þvílíkt sem að ég hló þegar að ég var að lesa þessar sögur!!!

07 október 2002

Smáauglýsing dagsins:
28 ára kvennmanskroppur fæst gefins gegn því vera sóttur, þarfnast smá smurningar og lagfæringar eftir ljósabruna. Rass og brjóst enn í góðu lagi (ekki farin að síga enn) - í öðru lagi allt heillt. Á sama stað óskast sódastrímtæki með flöskum. Upplýsingar gefur Steinunn í síma 896 1*4*.
Góðan daginn gott fólk og gleðilegan mánudag!!
Jæja ég vona að helgin hafi nú verið "súper" hjá ykkur öllum.......mín var bara fín..........fór á "Októberfest" hjá DV á föstudaginn, ekkert smá mikið stuð, var reyndar haldið á Victor (ekki alveg að fíla staðinn)....en það var alveg fínasta mæting, mikið drukkið (nema ég - hafa það á hreinu *bros*)......fékk mér reyndar einn svona "Shirley Tempel" (eða hvernig sem að það er nú skrifað) kokteil, bara svona til að vera með.........ég verð nú að viðurkenna að litli áfengisdjöfullinn - þessi sem að kúrir alltaf á hægri öxlinni hann var að pikka svolítið í mig allt kvöldið hihihihii......blekkti hann með óáfengum kokteil og hann varð rólegri þessi elska.........Það er ekkert smá gaman á svona vinnustaðadjammi, sjá "bossana" sína tapa sér alveg og verða að einhverjum allt öðrum manneskjum, allar mýsnar (þið vitið rólega fólkið) að fríka út á dansgólfinu eða á trúnó með einhverjum sem að það hefur ekki þorað að tala við þegar að það er edrú *glott*......vííííí....wellí það var allaveganna mjög gaman, fullt af skemmtiatriðum og einhverjum svona leikjum......Skildi við DV fólkið og fór aðeins á röltið með Hrönslunni minni, rölltum á Næsta bar - heilsuðum uppá Hamsturinn (Heiðrúnu) þar sem að hún var að vinna bara í góðum gír. Það var bara svo ógeðslega mikið af fólki alstaðar að maður fékk hvergi sæti, röltum alveg vel um bæinn í leit að sætum en fundum engin nema hvar haldiði, jú inná "stað dauðans"......Spotlight-Thomsen......sátum þar eitthvað..........dísus þar þurfti ég að KAUPA VATN.....arg, ég hef aldrei á ævinni þurft að kaupa vatn héra á Íslandi......djö var ég pirr þá, afgreiðslumaðurinn vissi að ég var ólétt, búin að vera að afgreiða mig með kaffi og eitthvað en samt vildi hann ekki gefa mér bara vatnsglas, hann gat ekki einu sinni gefið mér hreint glas með klökum í svo að ég gæti bara farið á klóið og fengið mér vatn úr krananum.......hiihihihi....já ég læt sko ótrúlegustu hluti fara í mig.....þetta fór MJÖG mikið í taugarnar á mér, en ég er búin að vinna með þessa innri reiði og er orðin fín í dag *bros* hihihii.......Wellí ég feita konan gafst upp um 3 leytið og við skröltumst bara í leigubíl og heim.......voða fínt kvöld bara.......mikið hlegið og gert grín að náunganum......ég held að ég hafi aldrei á ævinni séð jafn mikið af FEITUM túristum og ég gerði á djamminu á föstudaginn......allt svona "McDonalds" fólk...........æi örugglega fínasta fólk.....hiihihihih.....
Á laugardaginn vaknaði mín bara ofursnemma og skellti sér í bæjarferð með pabba og co., þau vildu endlega finna afmælisgjöf handa mér - sem að mér fannst ekkert leiðinlegt sko *glott*.....hihihih.....fórum í einhverja svona "óléttufatakonubúð" í Kópavogi og þar voru keyptar buxur og skyrta mjög flott.......loksins á maður föt sem að passa mar hihihiih......síðan var stefnan tekin niðrí 101 þar sem að við settumst inná kaffihús og liðið fékk sér STÓRAR kökusneiðar og kakó.....namm.....alveg lovlí, það var ekkert smá gott veður......rölltum í kolaportið og bara aðeins um bæinn, voða góður dagur. Síðan fór ég bara heim og kallinn minn var búin að elda handa mér góðan mat *slurk*.....glápti aðeins á sjónvarpið með honum og kúrðum okkur í sófanum bara einsog illa gerðir hlutir, síðan fór á hann á skrall með strákunum og ég fór heim til Hrönslu þar sem að við höfðum svona spilakvöld, afslöppun og rólegheit bara. Fór svo heim um nóttina, skellti "Friends" í tækið og sofnaði bara í sófanum.......bóndin kom heim svolítið vel syndandi og sætur *glott*........vaknaði aftur ofursnemma, fór í bakaríið og skellti mér svo heim til stelpnanna, vildi leyfa þeim þreytta bara að sofa í friði *bros* (ógó góð mar hiihhiih), fór með bakkelsi og kaffi og bauð mér í morgunkaffi, vakti alla á þeim bænum.........Fór svo bara heim þegar að líða var farið á daginn, lagðist uppí sófa og lá þar bara til hádegis í dag..........þvílíkt vel úthvíld og sæl !! Í dag bauð ég mér í síðdegiskaffi til múttu minnar sem að ég hef ekki séð í viku eða eitthvað og ég var komin með svona nett fráhvarfseinkenni hiihhih......var á trúnó með henni í allan dag, mikið verið að spá í mannanöfnum og bara öllu...........æi þetta er bara búið að vera yndisleg helgi og góður dagur!!!!
Æi það er svo gaman og gott þegar að manni líður einsog að lífið gæti bara ekki verið betra, maður einhvernveginn gleymir öllum áhyggjum, peningum, skuldum og þið vitið....það bara gerist allt of sjaldan !!
Wellí nú þarf ég að fara að vinna, þó svo að vinnunennarinn sé ekkert að virka í dag, þarf að trekkja hann.........
Bið bara að heilsa ykkur öllum í bili..............vona að lífið brosi við ykkur !!
*klípílæri*

p.s. ég las hérna speki inná einhverri síðu áðan:

I feel sorry for people who don't drink. When they wake up in the morning, that's as good as they're going to feel all day.
... "Frank Sinatra"

survivor



You Should Be On Survivor!


You're tough, athletic, and a strong competitor.


You'll eat anything to get that million dollars


- and crush everyone along the way!



What Reality TV Show Should You Be On? Click Here to Find Out!

02 október 2002

Vá hvað það rignir mikið mar...........einhver þarna uppi með blöðrubólgu á háu stigi sko!!! Ég er að reyna að láta skapið ekki vera í takt við veðrið en það virðist ganga eitthvað erfiðlega í dag svona *bros*........er líka eitthvað að reyna að gimpast hérna á blogginu mínu, er alveg komin með grænar af því ...kann einhver að gera svona dálk hægra meginn á blogginu, æi alveg einsog þann sem er vinstra meginn....hmmmm......????????????????????????????.. alltaf gaman að breyta til *bros*.....
Hlú hlú aftur litlu dýr!
Jæja, komin í aðeins betra skap *bros*, var eitthvað lengi að vakna og var ekkert að komast framúr rúminu í huganum, held að sálin sé bara ennþá heima kúrandi sér *bros*. Hún Sif litla hérna í vinunni sá hvað ég var eitthvað "hvumpinn" og kom færandi hendi með ferskan ananas *namm*.........var búin að gleyma hvað hann er góður mar.......vaknaði alveg við það....langar barasta í meira, en held að eg sé búin með helminginn af hennar hihihihihi.....fer og kaupi nýjann handa henni í hádeginu!!!

Ég átti alveg yndislegan afmælisdag/kvöld í gær...Var semsagt að vinna í gær til að verða 4, þá komu mamsa og bóndinn að sækja mig í vinnuna......fórum heim þar sem að borin fram var ógeðslega júsí súkkulaðikaka með ógó miklu kremi og rjóma, mjólk og kaffi.............*slef*......síðan elduðu þessar elskur handa mér alveg ógó góðann mat....*slurk*.....borðaði auðvitað yfir mig af honum, eða við öll. Láum svo öll ALVEG afvelta yfir sjónvarpinu...........smá hópmelting í gangi hihhihh.....
Ég fékk alveg ógeðslega flott listaverk frá þeim saman í afmælisgjöf....ég elska svoleiðis gjafir......æi þið vitið sem að verða alltaf með manni, listaverk, málverk, bækur.....ég er svo mikið svoleiðs *bros*......þetta sem að þau gáfu mér er svona keramikkelling (stór), sem að er líka svona blómavasi (fyrir 1 rós)......þannig að auðvitað fékk ég uppáhaldsblómið mitt sem að eru hvít rós.....*bros*.....ég var búin að benda múttu minni á þetta einhverntíman þegar að við vorum saman að skoða stúdentsgjafir, en fokk ég bjóst aldrei við að þau myndu gefa mér svona............TAKK ÞIÐ TVÖ......!!!!!!!!!!
Wellí við lágum bara að horfðum að mestu lágkúru sem til er í heiminum "The Bachelor" á Skjá Einum...........óóóó mæ god......hvað er það......er ekki allt í lagi með fólk, ég vissi í alvöru ekki að það væri til fólk sem að legðist svona lágt.........út frá þessum þætti fór mikil umræða í gang um það hvað fólk myndi nú gera fyrir frægðina, peninga, græðgi etc..........ég held svona innst inni að þetta sé eitthvað sem að bara bandaríkjamenn myndu láta hafa sig útí.......þeir eru svo "spes" þessar elskur.....
Æi þessir raunveruleikaþættir eru ekki alveg að gera það fyrir mig, það er líka svo mikið af þessu...........Temtation Island (ó mæ god), The Bachelor (ennþá meira ó mæ god), Big Brother, Survivor................og örugglega svo miklu miklu meira sem að á bara eftir að rata hingað til Íslands.....
Wow.....verð að þjóta þarf að fara að vinna.....heyri í ykkur bara aftur á eftir..
*bleble*
Góðan daginn gott fólk og gleðilegan "rigningar" miðvikudag!!!!! Ég var inná Huga að skoða greinar og dót þar.......þar rakst ég á svona lista sem að einhvers stúlkukind hefur búið til fyrir stráka, hvernig þeir eiga að vera, haga sér, gera......etc......
Af hverju gerir fólk svona lista.....og af hverju eru bara til svona lista fyrir stráka........hihihihih......er í alvöru einhver stelpa sem að er svo heimsk, hún heldur að hún sé "FULLKOMIN".....æi ég skil ekki svona.......ég ætla að skella þessum lista hérna.......segið mér hvað ykkur finnst......
....verð að viðurkenna það að ég varð svona pínu, smá, ogguponsu pirruð að lesa þennan lista.........hihhiiihhihi...ég jafna mig!! Jú, jú sumt af þessu er satt, maður vill að hinn aðilinn geri þetta...............en bara það að það sé til listi........æi æi æi æi........hætti að röfla núna


1. Know how to make you smile when you are down.
2. Try to secretly smell your hair BUT you always notice.
3. Stick up for you but still be respectful of your independence.
4. Give you the remote control during the game.
5. Come up behind you, put his arms around you, squeeze you tightly against his chest, and whisper softly into your ear
6. Play with your hair.
7. His hands will always find yours.
8. Be cute when he really wants something.
9. Offer you plenty of massages.
10. Dance with you even if he feels like a dork.
11. Never run out of love.
12. Be funny, but knows when to be serious.
13. Realize he's being funny when he needs to be serious.
14. Be patient when you take forever to get ready.
15. React so cutely when you hit him and it actually hurts.
16. Smile a lot.
17. Plan a romantic date full of cheesy things he wouldn't normally do just b/c he knows it means a lot to you.
18. Appreciate you.
19. Help others out.
20. Drive 5 hours just to see you for 1.
21. Always give you a peck on the cheek when you depart from each other's company- even when friends are watching.
22. Sing even if he can't
23. Have a creative sense of humor.
24. Stare at you.
25. Call for no reason
26. Quit smoking, chewing, drinking, or drugs just b/c he loves you enough to quit!!

01 október 2002

Vá ég er að verða geðveik á þessum "eldri blogg"....druslum...........kann einhver á svona drasl?????????????????? *hjálp*

KJÓSA KJÓSA KJÓSA KJÓSA

"ég á ammæli, ammæli, ammæli........*jeij*
Æðislegur dagur, gaman og gott að vakna..........hefði alveg viljað sofa lengur......hver vill það svosem ekki, ýta á snooz takkann í marga tíma *bros*.......Jæja nú er maður bara orðin 23 ára gamall. Vá spá í því, næst þegar að ég á afmæli þá verður maður bara orðinn "mamma"................JEIIIIIIII.....ég er ekkert smá heppin manneskja mar, alltaf gaman að vera glaður og hamingjusamur!!!!
Hihihihi....ætla að hætta að bögga ykkur með gleði minni núna, tala betur við ykkur á eftir þegar að mér er farið að líða ver ..... djók.....þarf bara að vinna.....skrifa á eftir!!!
*afmælisknús*

wow....ef að síðan mín er ekki að fríka út núna þá veit ég ekki hvað, eldri bloggin mín bara farin að taka hálfa síðuna og eitthvað........wellí nenni engann veginn að spá í þessu núna!!!





Take this Quiz